fimmtudagur, 31. maí 2007

Enginn skóli....

Mikið er yndislegt að vinna bara....nýt þess í botn!

Hef verið að vinna upp í skóla sl. daga, aftur á morgun og mánudaginn og svo á leikskólanum samhliða því. Það verður gott að fara að vinna með konunum mínum aftur uppi á leikskóla. Alltaf gott að vera þar. Heyrist ég verða á miðstiginu næsta vetur þori samt ekki að fullyrða það né hvaða bekk ég fæ. Allt voða spennandi. Þórhallur er kominn heim, hann var að klára sveinsprófið og gekk heyrist mér vel. Þeir voru víst nálægt því að slá nýtt íslandsmet en það lak víst of mikið hjá þeim en hann var þriðji að klára. Duglegur hann Þórhallur minn :)

Börnin mín eru hress og kát en svolítið þreytt í góða veðrinu. Þau eru meira og minna bara úti, vakna snemma og fara seint að sofa....en þetta fer að lagast alla vega hjá strákunum sem klára skólann á mánudaginn. Ísak er að fara í golf, hann er ósköp spenntur fyrir því og byrjar á mánudaginn. Hann fór vestur á Seftjörn á síðustu helgi með mömmu og Guðrúnu systur í sauðburð og var svo heppinn að Skrítla hans bar og hann horfði á, það var víst voða gaman að fylgast með honum sjá lambið fæðast. Úffa hennar Auðar bar líka fékk hrút sem heitir ,,lútuð" (hrútur) og Golsa hans Hafsteins bar líka, viðburðarík helgi sem sagt og Ísak var himinlifandi með þetta allt saman. Hann er nú líka einstakur þegar kemur að sveitastörfum og áhuginn er mikill.
Ég er ekki frá því að ég hafi tekið örlítinn lit í dag...ekki veitir af :) ég fór í sund í gær með skólakrakka og var eins og skyrsletta inn á milli allra krakkana sem auðvitað eru ekki lengi að taka lit. Reyni nú samt að eyða eins miklum tíma og ég get utandyra enda finnst mér yndislegt að gutlast í garðinum svo það fer vel saman, þyrfti samt að koma svo gott veður að ég geri verið á stuttbuxum svo ég fái pínu lit á fæturna.
Það styttist í útskrift og við hjónin höfum verið að reyna að ákveða með okkur hvernig við höldum upp á áfangana......erfitt að komast að niðurstöðu en það líður að því að niðurstaða verði að nást......jæja
Segjum þetta gott í bili, heyrumst
kveðja
Íris

mánudagur, 21. maí 2007

Prinsessur í niðursuðudós....

Dóttir mín hefur verið mikill aðdáandi prinsessa síðan hún sá Viktoríu frænku sína í prinsessubúningi, ,,éð e pinsessa" segir hún oft og á buxur með kórónu sem hún kallar prinsessubuxur og ýmislegt í þessum dúr...ég hef svo sem keypt ýmislegt prinsessulegt af því mér finnst það krúttlegt en vil frekar meina að það sé álfkonudót fremur en prinsessudót (það segi ég við sjálfa mig). Að kalla stelpur prinsessur hefur alltaf farið svolítið í taugarnar á mér og ég forðast að segja það um stelpur, hvers vegna það var áttaði ég mig ekki á fyrr en nýlega. Ástæðan, prinsessur í ævintýrum eru hreinlega undirlægjur og hamingja þeirra felst í því að eignast góðan mann. Þær eru óvirkar og undir aðra komnar, eiga alltaf sinn verndara. Mjallhvít hafði dvergana, Öskubuska álfkonu, Þyrnirós sömuleiðis, þeim var svo öllum bjargað úr bágum aðstæðum af prinsi. Þær bera alla bestu kosti samkvæmt ævintýrum eru fallegar, blíðar, góðar og prúðar. Sjálfstæðar konur í ævintýrum s.s. stjúpur og nornir hljóta ávalt slæma útreið, eru vondar og þeirra innra eðli er rotið. Það er í raun alveg ótrúlegt hvað traðkað er á konum í ævintýrum og í sumum eru þær niðurlægðar og bældar niður þangað til þær gefa sig á vald karlmannsins. Það er þó ekki svo að ég sé andstæðingur ævintýra, síður en svo ég er afar þakklát fyrir þennan mennigararf. Aftur á móti tel ég að það þurfi að umgangast þau á afar gagnrýnin hátt.
Furðulegt hvað maður hefur skynjað þetta sem krakki þó maður hafi ekki kannski áttað sig á samhenginu. Nornir til að mynda hafa alltaf heillað mig mikið, græn augu, mikið rytjulegt hár, heillandi persónuleikar sem fáir fá staðist. Ég man ekki eftir að hafa viljað verða prinsessa þegar ég var krakki en norn eða indjánastelpa var afar heillandi. Ronja ræningjadóttir algjört æði. Þó er þreytandi hvað sjálfstæði kvenna miðast mikið út frá kynþokkanum, þannig hafa konur í myndum og bókum t.a.m. yfirleitt vald yfir karlmönnum...vegna óseðjandi kynþokka. Hver man til dæmis ekki eftir Ísfólkinu :)
Íris

sunnudagur, 20. maí 2007

Lífið er ljúft

Ég er búin að vera eins og í leiðslu alla helgina....búin í skólanum, já búin í skólanum og ætla mér ekki í skóla aftur amk næstu tvö-þrjú árin. Ég næ þessu varla og öðru hvoru fæ ég hnút í magann og finnst ég vera að svíkjast undan. Hef þó ekki trú á öðru en að þetta komist upp í vana.
Þórhallur minn útskrifaðist í gær hann var í síðasta hópnum sem fór upp og auðvitað einn síðastur til að ganga upp á svið, eins og Hafsteinn benti á þá er það auðvitað glatað að eiga mann sem heitir nafni sem byrjar á Þ. Spurning um að fá hann til að breyta þessu bara fjölskyldunni til hagræðingar í framtíðinni :-). Ég væri kannski ekki mikið að kvarta yfir þessu nema hvað ég og Auður fórum að sjá pabbann útskrifast. Útskriftin tók 1 klst og 45 mín. (og við fórum fyrr) og Auður var í stuði....henni fannst ekki skemmtilegt að vera inni í hitanum eins og örugglega flestum sem þarna voru en ólíkt hinum þá fór hún ekkert í felur með það. Henni fannst furðulegt hvað ég hvíslaði mikið og hækkaði róminn í samræmi við það (hefur ábyggilega haldið að ég heyrði ekki nógu vel í henni) en fólki fannst hún fyndin sem hún auðvitað var enda átti hún marga góða punkta mis vandræðalega auðvitað, ,,er þatta api" spurði hún þegar hún var að skopa fæturna á konunni við hliðina á okkur. Hún varð aðvitað yfir sig glöð þegar pabbi hennar steig af sviðinu og var ekkert að sitja á stoltinu eins og ég gerði.....hún hrópaði hátt yfir allan salinn ,,pabbi minn, sjáðu pabbi minn."
Vorum að koma úr sundi, frekar kalt á okkur vorum bara þrjú, strákarnir fengu að gista hjá vinum sínum sl. nótt. Við erum bara hérna í mestu makindum að elda og svona, aðalega að njóta þess að hafa það rólegt, veðrið býður líka ekki upp á neinn hamagang.
Farin út á snúrur að hengja út, fínasti þurrkur
Íris

laugardagur, 19. maí 2007

Íris búin og ég að útskrifast

Jæjja þá er hún Íris mín búin í skólanum og ætti ef Guð og lukka leyfir að útskrifast í júní (sem er nú alveg öruggt) og ég er að útskrifast í dag af pípulagnabraut Borgarholtsskóla en hin eiginlega útskrift er ekki fyrr en eftir sveinspróf sem er frá 29-31 Maí ,það er vonandi að maður nái því.
bæ bæ

fimmtudagur, 17. maí 2007

þriðjudagur, 15. maí 2007

,,Telpa hættu strax að hljóða. Heyrirðu ekki, gamla væluskjóða?"

Ég er að vesenast í verkefni sem ég botna lítið í....eða ég veit alveg hvað ég á að gera ég hef bara ekki nógu mikla kunnáttu á þessu sviði. Er s.s. að vinna í verkefni þar sem ég þarf að nota hljófræðikunnáttu. Aðblástur, fráblástur, önghljóð og lokhljóð o.s.frv....já ekki nóg með að vera að vinna í hljófræði heldur þarf ég að greina framburð unglings sem hefur búið á Íslandi í 4 ár og hann talar enga norðlensku eða er flámæltur sem hefði verið mun auðveldara að eiga við því að eru til fullt af greinum um slíkt. Við erum að tala um 20 bls. rugl frá mér um hljóðfræði fyrir laugardag. Ég er reyndar búin með u.þ.b. 4 bls. passa mig á að taka forsíðu og efnisyfirlit, lokaorð og heimildarská inn í þessa 20 bls. tölu þannig að ég get huggað mig við að þetta þurfa ekki að vera nema 16 bls. OJ hvað þetta er leiðinlegt, hefði nú verið gaman að fá eitthvað skemmtilegt verkefni svona í lokin.....það er s.s. eini plúsinn við þetta að þetta er síðasta verkefnið mitt í grunnskólafræðum...VÚHÚ! Svo er bara að finna út hvað ég á að gera frídaginn minn 20. maí það verður eitthvað ótrúlega skemmtilegt....en mikið verður gott að vinna bara í næstu viku og koma heim og þurfa að hugsa eitthvað takmarkað annað en að skemmta börnunum og laga til. BARA FRÁBÆRT!

Ég er búin að vera að læra ýmislegt skemmtilegt í vetur t.d. um hræðsluvætti s.s. eins og Grýlu, nykur og Kuldabola (hann var skelfilegur). Við vorum svona að velta því fyrir okkur hver staða þeirra væri í dag, komumst að því að hún er kannski svolítið bág staða Grýlu t.d. afar mótsagnakennd. Svo var ég eitthvað að vafra á netinu og fann voða fína grein eftir Hugo Þórisson sálfræðing þar sem hann talar einmitt um hræðsluvætti áður fyrr og svo í nútímanum, það kom ansi margt skemmtilegt fram hjá honum og margt sem maður kannast við, endilega kíkið á þessa gein http://www.hugo.is/hollrad_old2.asp?ID=42 ekki verra að losa sig við þennan ósið.

Já svo fyrir þá sem eru ekki með það á hreinu þá á ég afmæli á fimmtudaginn :) bara ef þið hafið ætlað að droppa við með pakka eða svo sem eins og nokkra kossa, annars verð ég bara við símann og tek á móti hamingjuóskum :) Karlinn verður annars heima og hellir upp á kaffi fyrir gesti og gangandi, ætli ég verði bara ekki einhversstaðar í grennd við tölvuskrattann....sýnist mér með þessu áframhaldi.
xxx
Íris

mánudagur, 14. maí 2007

ekki laust við að maður sé pínu fúll

Æ já kosningarnar fóru víst ekki nákvæmleg eins og ég hefði kosið, hefði viljað sjá Sjálfstæðisflokkinn finna örlítið meira fyrir þessu en raun varð. Furðulegt hvað þeir voru böggaðir lítið fyrir kosningar....en svona er þetta. Nenni nú ekki að tala mikið meira um þetta en er samt örlítið vongóð með stjórnarmyndun, samt ekki :( Annars höfðum við það voða fínt hérna með Ásdísi, Benjamín og Freyju. Við Ásdís skruppum á kosningaskrifstofu og svo á pöbbann. Fórum eftir að stjórnin var risin aftur og hún var enn í góðum gír þegar við komum heim....vöktum þó til rúmlega fimm í von um að eitthvað gerðist.


Frábært veður hér í dag, var auðvitað að læra og fór svo út í garð með skottu eftir leikskólann hún vissi nú ekki alveg hvort hún vildi vera inni eða úti, þreytt auðvitað en við þraukuðum tæpa tvo í garðvinnu. Hún var líka gjörsamlega búin á því og sofnaði mjög fljótlega eftir að hún var komin inn. Stákarnir sáust auðvitað lítið hér heima í dag eins og flesta daga.

Ég á afmæli á fimmtudaginn, já það er sko alltaf gaman að eiga afmæli. Er búin að vera að reyna að fá Ísak til þess að baka fyrir mig rjómatertu í afmælisgjöf......hann hefur pínu áhyggjur af því, ég held hann langi frekar að baka köku sem hann getur skreytt almennilega með gúmmelaði...annars var H.E. að segja mér áðan að hann væri að fara í próf í heimilisfræði eftir 2 vikur svo það er alveg spurning að dobla hann bara...fínasta æfing!


Jæja klukkan orðin allt of margt þarf að vera rosa dugleg á morgun til að standast áætlanir


xxx


Íris

sunnudagur, 13. maí 2007

Þetta er víst fall

Þá liggur þetta loksins fyrir (vegna snildar frammistöðu Borgnesinga í talningunni þá dróst þetta eitthvað á langinn,það er sem maður segir það á ekki að láta bændur gera neitt sem hægt er að láta aðra gera)stjórnin er fallin allavega að mínu mati (þegar Ríkisstjórn hefur ekki meirihluta þjóðarinnar á bakvið sig þá er hún fallinn. Ásdís og Ben voru hérna í nótt ásamt Freyju,við horfðum saman á urovision og kosningarnar fengum okkur smá öl og spiluðum smá drykkjuleiki sem er svolítið gaman vegna þess að Ben er alin upp við drykkjuleiki og við ekki þannig að honum fynst við vera frekar vitlaus og sein á okkur , en það gefur okkur vitleisingunum möguleika á því að drekka meira.
Hafsteinn var með vin sinn í heimsókn í nótt ,þeir skelltu sér í sjoppuna,keyptu sér slang fyrir 2000 krónur settust svo inn í herbergi,þegar ég kíkti á þá aftur kl 2 30 þá sátu drengirnir enþá stjarfir yfir tölfunni ,svona er ungdómurinn í dag ,það var öðruvísi þegar maður var ungur þá mátti maður þakka fyrir að fá að horfa á sjónvarpið á fimmtudögum og gotterí man ég bara ekki eftir að hafa fengið nei svona lúxus þektist bara ekki á mínu heimili. Við vorum svo fátæk þegar ég var krakki að það sást til mömmu sparkandi dós á undan sér niður götuna og var spurð hvað hún væri að gera og hún svaraði ;flytja;
svo er hérna fyrripartur eftir mig og seinnipartur eftir pabba

Hugurinn reikar um hrímhvíta jörð
Horfi yfir sæinn og útfyrir fjörð
Við Blakkinn er stornur
Og í Álnum er rok
Á Halanum er þvílíkt mok

bæ bæ

laugardagur, 12. maí 2007

Ef ég ætti fána þá myndi ég flagga...


Kosningadagur runnin upp og ég er full bjartsýni svona í morgunsárið. Fyrirsögn Fréttablaðsins ,,Spennan snýst um hvort stjórnin lifir" hleypir í mann eldmóð og fyllir mann baráttuhug. Nú er bara að vona að einhverjir vitleysingar fari ekki að reyna að bjarga stjórninni. Dagurinn lofar góðu og tími er kominn á breytingar.


Þarf að redda mér best off eurovision disk því ég er að fara að laga til og vantar eitthvað til að fullkomna stemninguna.....spurning um að hlaupa út og ná mér í disk og barmmerki og fleira sem ég þarf til að halda stemningunni.


Ásdís, Benjamin og Freyja skott koma á eftir (Ásdís þín, Benja-mín og Freyja mín eins og Auður sagði áðan). Hlökkum til að sjá þau.



Fellum stjórnina

xxx

Íris


föstudagur, 11. maí 2007

0% sjálfstæðismanneskja


Jæja, held það þurfi að fara að breyta fyrirkomulagi eurovision....svolítið svekkjandi að fara að horfa á eurovision enn eitt árið og ekki vera með í aðalkeppninni.....en Eiríkur var þrusuflottur á sviðinu. Svo verður þetta eins á næsta ári, þessi lög sem voru kosin áfram núna detta flest út af því þau eru svo léleg þannig að við þurfum að keppa við þau aftur að ári og þá auðvitað komast þau áfram en ekki við o.s.frv. Heyrði reyndar í fréttunum í dag viðtal við Siggu Beint. að það væru raddir um að breyta fyrikomulaginu á næsta ári.

Er búin að vera rosalega dugleg að læra í dag, kláraði tvö verkefni og er nokk á áætlun. Aha rosa dugleg.

Spenningurinn alltaf að verða meiri og meiri fyrir kosningunum, gerði könnun áðan sem kom ekkert sérstaklega á óvart nema hvað ég er 0% sjálfstæðismanneskja sem hlýtur að teljast nokkuð gott. Verra samt með með framsóknarflokkin mældist með full mikinn áhuga á þeim það svosem getur ekki talist marktækt því þeir eru auðvitað límdir við sjálfstæðisflokkinn svo það er óhætt að þurrka það út bara...ekki satt.

Hef ekki haft við í kvöld að fara til dyra, alltaf að vonast til að einhver sé að koma til mín en fyrir utan standa mismargar uppstríllaðar 13 ára skvísur að spyrja eftir krútta s.s. Hafsteini.
Já og svo kom hérna maður í morgun að laga rafmagnið...ég var inni á baði að klæða mig í brjóstahaldarann (sem ég var sem betur fer komin í því það hefði nú ekki verið gaman að vera svo nývöknuð þegar einhver býður sér inn) en alla vega Auður byrjar allt í einu öskra og ég hleyp auðvitað fram. Þá er s.s. maðurinn kominn inn bakdyramegin, stendur í eldhúshurðinni og heilsar bara voða kurteisislega eins og þetta sé bara það eðlilegasta í heimi að labba inn til fólks sem þú þekkir nánast bara ekki neitt. Við svo sem vissum að hann var að koma en ég mæli eindregið með að fólk dingli og bíði svo bara í smá stund....ég geri það og einmitt til að forðast að sjá fólk eins og það er heima hjá sér.
Og köngulóavertíðin er hafin! sá eina ljóta í þvottahúsinu í gær sem gerir það að verkum að nú get ég varla verið þar inni án þess að klæja hrikalega svo nú er bara að þvo niður og venja fólk af því að henda fötum á gólfið þar inni.....kæri mig lítið um að mæta fleiri vinkonum.

Jæja ætli ég verði ekki að fara að ganga frá eftir matinn.....kannski ég bara fái mér pínu bjór til að gera verkið áhugaverðara :-) Jamm hljómar vel...

xxx

Íris

miðvikudagur, 9. maí 2007

Kattar djöfullinn, kosningar og siðprúður eiginmaður


Jæja sest við tölvuna eina ferðina enn, er farin að telja niður dagana þangað til þessu er öllu lokið. Finnst ég í full miklu kappi við tímann og þess vegna ætti ég alls ekki að vera að blogga núna....en...


.....Auður er á leiðinni í lambaferð upp á Bjarteyjarsand í Hvalfirði. Ég er búin að vera svolítið kvíðin, fyrir hennar hönd, fyrir þessari ferð af því litla krútt er hrædd við flest kvikt....sérstaklega hunda. Ísak var líka duglegur við að segja henni frá því að það væri hundur í sveitinni sem hún væri að fara í þannig að til öryggis þurfti ég að halda á henni í leikskólann :) Þetta eru vandræði vægast sagt. Hún labbar í leikskólann með varann á sér, þegar hún man, og kíkir fyrir horn til að fullvissa sig um að kettirnir í götunni séu hvergi sjáanlegir. Þetta eru óargadýr þessir kettir, við reynum að gera sem minnst mál úr þessu og vonum að hún vaxi upp úr þessu. Hún var samt voða spennt fyrir ferðinni ,,éð a faðí ðúta mín í seiti mín" sagði hún okkur í fréttum í gær.


Spenningur fyrir kosningum sem nálgast óðum svo ekki sé minnst á eurovision. Mæli með að fólk styðji bara rautt þetta kvöld til að ruglast ekki í hvatningarhrópunum :)


Og vegna vafasamrar bloggfærslu Þórhalls míns hér á undan um eymsli í öxl og pung, vil ég fullvissa ykkur um að hann Þórhallur minn hefur kristnilegt siðgæði að leiðarljósi og 19. aldar viðhorf til kynlífs þ.e. ef þið hafið að einhverju misskilið eymslin í þessum tveimur líkamspörtum þar sem hann minntist á þau í sömu setningu.


tilvalið að ljúka færslunni með þessum ljúfu orðum,

lifið heil

xxx

Íris


þriðjudagur, 8. maí 2007

jæja þá er þessi dagur að kveldi kominn, dagurinn heldur skárri en í gær vinnulega séð og miklu betra heima börnin þæg, kellingin fallegri(ef það er hægt)ég flottari og ríkari en helvíti ílt í pungnum og öxlinni . Ég var að velta fyrir mér gamalli klisju um samskipti kynjana, það þegar konan spyr mann hvort hún sé feit og þú segir nei og frúin svarar ;þér fynst það víst; og til að bjarga sé segir maður ;jú ég sé það núna þú ert feit; þá er sem við manninn mælt það verður allt vitlaust. þannig að ég spyr mér reynslumeiri menn ,hvernig bjargar maður sér útúr svona hlutum?
svo er hérna einn lítill brandari.
Við vorum svo fátæk þegar ég var krakki, að ef ég hefði ekki fæðst strákur þá hefði ég ekki haft neitt til að leika mér að.

það er ekki en búið að bjóða mér að vera með í fjárfestingunni,manni finst það skrítið.
ok bæ

mánudagur, 7. maí 2007

Skelfilegur dagur

Þetta er búin að vera skelfilegur dagur það hefur bókstafnega allt gengið á afurfótunum í dag hjá mér. ég var að fara að vinna fyrir sunnan, fór of seint af stað og þurfti að koma við í kópavogi til að sækja snittvél en ákvað að fyrst að ég væri nú þarna þá skildi ég setja upp eina klósettskál (15 mínútu vinna venjulega) en eftir einn og hálfan klukkutíma þá dæmdi ég klósettið gallað og hélt mína leið yfir í Hafnafjörð til að breita smá lögnum ,Þar var ég klukkutíma að finna innstungu sem þoldi snittvélina og þegar því var lokið þá kom í ljós að snittvélin lét ekki að stjórn einsog hún átti að gera þannig að ég varð að fara með alla búta í Byko til að snitta og tveggja tíma vinna varð að sex tíma vinnu. en svona er þetta stundum og ég vona bara að morgun dagurinn verði betri.
ok bæ

Englabörn


Æ, þessar elskur. Það var þó ekki auðvelt að ná einni góðri mynd af þeim öllum saman. Ég var einmitt að ræða það við hana mömmu mína um daginn að það væri lítið mál að ná góðum myndum af tveimur börnum (enda á ég trilljón góðar myndir af strákunum) en þegar börnin eru orðin þrjú þá er það bara vandræði. Á reyndar nokkrar af þeim þremur þar sem þeirra rétta eðli kemur fram :)
xxx
Íris

sunnudagur, 6. maí 2007

Nauðbeygður

Þá loksins lætur maður undan,
konan búin að vera að tuða í mér að byrja að blogga á þessa síðu ég veit ekki hvað ég á að segja nema það að ég er búinn að éta yfir mig af pizzu og var ekkert fullur um helgina frekar en aðrar helgar núorðið.
Krakkarnir búnir að láta eins og andskotinn alla helgina og hún Auður mín að verða óþekkust af þeim öllum, ég veit ekki hvort þið kannist við orðatiltæki eins og "haldið þið að ég sé einhver þræll eða hvað" ,,af hverju bara ég aldrei hann" ,,við þurfum alltaf að ganga frá eftir matinn aldrei þið" ,,það er aldrei neitt hreint á mig" "afhverju þarf ég alltaf að fara að sofa svona snemma" ,,allir vinir mínir eiga svona" "það ætla allir að fara" ,,það fá allir að vera lengur úti" og það eru mörg fleiri sem þið kannist eflaust við annars er það af mér að frétta að ég seldi krossarann minn um daginn og sé soldið eftir því en keypti strax míní krossar 110 kúpika hjól sem passar fyrir okkur alla feðgana.
Og svo má víst ekki gleyma því að maður er víst að fara að útskrifast úr skólanum 19 maí (sem er nú eitthvað sem ég hélt að ég myndi aldrei gera) fer svo í sveinspróf 29-31 mai og þá er þetta búið í bili. Hugmyndin í frammhaldi af því er að fara í Iðnfræði í Tækniháskólanum ef ég nenni því en ég fæ víst meistarann í því námi +iðnfræðinginn og það er litlu lengra en meistaranámið eitt og sér en þeta kemur allt í ljós þegar fram líða stundir.
Það eru einhverjar stórfjárfestingar í móðurfjölskyldunni sem koma betur í ljós seinna en allavega var mér ekki boðið að vera með.
jæja hættur þessu rausi bless

Í aðdraganda kosninga.....

Hér er kominn spenningur fyrir kosningum....eða ég orðin spennt og held ég búin að ákveða mig :) Þórhallur minn hefur reyndar hótað því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn nk. laugardag. Einmitt! veit ekki hvort hann hefur kynnt sér kosningaloforðin....en mín reynsla eða mynd af sjálfstæðisflokknum er minni þjónusta og minni skilningur á grunnþörfum manna....held það hljóti að hafa það sama í för með sér inni á heimilinu kjósi menn Sjálfstæðisflokkinn (ho, ho)
xxx
betri helmingurinn :)