Æ já kosningarnar fóru víst ekki nákvæmleg eins og ég hefði kosið, hefði viljað sjá Sjálfstæðisflokkinn finna örlítið meira fyrir þessu en raun varð. Furðulegt hvað þeir voru böggaðir lítið fyrir kosningar....en svona er þetta. Nenni nú ekki að tala mikið meira um þetta en er samt örlítið vongóð með stjórnarmyndun, samt ekki :( Annars höfðum við það voða fínt hérna með Ásdísi, Benjamín og Freyju. Við Ásdís skruppum á kosningaskrifstofu og svo á pöbbann. Fórum eftir að stjórnin var risin aftur og hún var enn í góðum gír þegar við komum heim....vöktum þó til rúmlega fimm í von um að eitthvað gerðist.Frábært veður hér í dag, var auðvitað að læra og fór svo út í garð með skottu eftir leikskólann hún vissi nú ekki alveg hvort hún vildi vera inni eða úti, þreytt auðvitað en við þraukuðum tæpa tvo í garðvinnu. Hún var líka gjörsamlega búin á því og sofnaði mjög fljótlega eftir að hún var komin inn. Stákarnir sáust auðvitað lítið hér heima í dag eins og flesta daga.
Ég á afmæli á fimmtudaginn, já það er sko alltaf gaman að eiga afmæli. Er búin að vera að reyna að fá Ísak til þess að baka fyrir mig rjómatertu í afmælisgjöf......hann hefur pínu áhyggjur af því, ég held hann langi frekar að baka köku sem hann getur skreytt almennilega með gúmmelaði...annars var H.E. að segja mér áðan að hann væri að fara í próf í heimilisfræði eftir 2 vikur svo það er alveg spurning að dobla hann bara...fínasta æfing!
Jæja klukkan orðin allt of margt þarf að vera rosa dugleg á morgun til að standast áætlanir
xxx
Íris
Engin ummæli:
Skrifa ummæli