mánudagur, 7. maí 2007

Englabörn


Æ, þessar elskur. Það var þó ekki auðvelt að ná einni góðri mynd af þeim öllum saman. Ég var einmitt að ræða það við hana mömmu mína um daginn að það væri lítið mál að ná góðum myndum af tveimur börnum (enda á ég trilljón góðar myndir af strákunum) en þegar börnin eru orðin þrjú þá er það bara vandræði. Á reyndar nokkrar af þeim þremur þar sem þeirra rétta eðli kemur fram :)
xxx
Íris

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært að fara að lesa e-ð frá ykkur :)
Þórhallur minn, það er kannski smá huggun að okkur var heldur ekki boðið að vera með í stórfjárfestingunum.... það er svona að vera yngstu börnin í fjöldskyldunni... "allir hinir mega vera með en ekki við"... kannastu við þennan frasa.
knús frá lillu sis og strákunum í Århus

Nafnlaus sagði...

Ég kanski prenta þessa mynd út til að hafa þau öll saman á mynd - það er reyndar svo að ég held að það sé Auður sem ekki tollir á mynd - hún er alltaf búin að snúa sér við og hlaupin af stað!!
Mamma

Íris & Þórhallur sagði...

já það var raunin þangað til akkúrat þennan dag, eins og sjá má á myndabrosinu á henni...hún var sko alveg til í nokkrar pósur. Fínasta mynd en verst með auka eyrun sem H.E. setti á hann bróður sinn :)

Kveðja Íris