miðvikudagur, 9. maí 2007

Kattar djöfullinn, kosningar og siðprúður eiginmaður


Jæja sest við tölvuna eina ferðina enn, er farin að telja niður dagana þangað til þessu er öllu lokið. Finnst ég í full miklu kappi við tímann og þess vegna ætti ég alls ekki að vera að blogga núna....en...


.....Auður er á leiðinni í lambaferð upp á Bjarteyjarsand í Hvalfirði. Ég er búin að vera svolítið kvíðin, fyrir hennar hönd, fyrir þessari ferð af því litla krútt er hrædd við flest kvikt....sérstaklega hunda. Ísak var líka duglegur við að segja henni frá því að það væri hundur í sveitinni sem hún væri að fara í þannig að til öryggis þurfti ég að halda á henni í leikskólann :) Þetta eru vandræði vægast sagt. Hún labbar í leikskólann með varann á sér, þegar hún man, og kíkir fyrir horn til að fullvissa sig um að kettirnir í götunni séu hvergi sjáanlegir. Þetta eru óargadýr þessir kettir, við reynum að gera sem minnst mál úr þessu og vonum að hún vaxi upp úr þessu. Hún var samt voða spennt fyrir ferðinni ,,éð a faðí ðúta mín í seiti mín" sagði hún okkur í fréttum í gær.


Spenningur fyrir kosningum sem nálgast óðum svo ekki sé minnst á eurovision. Mæli með að fólk styðji bara rautt þetta kvöld til að ruglast ekki í hvatningarhrópunum :)


Og vegna vafasamrar bloggfærslu Þórhalls míns hér á undan um eymsli í öxl og pung, vil ég fullvissa ykkur um að hann Þórhallur minn hefur kristnilegt siðgæði að leiðarljósi og 19. aldar viðhorf til kynlífs þ.e. ef þið hafið að einhverju misskilið eymslin í þessum tveimur líkamspörtum þar sem hann minntist á þau í sömu setningu.


tilvalið að ljúka færslunni með þessum ljúfu orðum,

lifið heil

xxx

Íris


2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Skvís. Takk fyrir kommentið og gaman að vera komin með auka bloggsíðu fyrir daglega rúntinn;-) Tek þig svo sannarlega á orðinu og mæti á pallinn í sólina og hvítt í sumar. Ætti nú að vera auðveldara að kíkja í heimsókn þegar "tengdó" búa þarna rétt hjá;-)
Hafið það nú gott og gangi ykkur hjónum vel að klára námið í sumar.

kv. Stefanía

Íris & Þórhallur sagði...

Já þetta var frekar fyndið að vera að hringja niður á spítala að panta tíma til læknis og vera allt í einu spurð hvort ég væri ekki vinkona hennar Stefaníu :-) Lítill bær....en gaman að fá bloggið þitt
Íris