fimmtudagur, 14. júní 2007

langt um liðið....

Ísak, Freyja & Auður

Hafsteinn Einar


Nóg að gera á þessum bæ....strákarnir eru reyndar í Borganesi hjá mömmu og pabba svo það er nóg að gera hjá þeim ætla ég :) maður er reyndar svo þreyttur eftir vinnuna og sólina og alla útiveruna að maður bara leggst upp í sófa og drattast svo inn í ból um 10 á kvöldin þ.e. ef maður nær að halda sér vakandi svo lengi. Annars er bara voða ljúft að vera að vinna uppi á leikskóla hef verið á elstu deildinni sem er ósköp fínt og þar er ég í góðum félagskap barna og kvenna. Það er svo komið á hreint hvaða bekk ég fæ næsta vetur :) ég fæ annan 6. bekkinn, 6. ÍA (já ekki slæmt á Akranesi) og er mjög sátt við það, kannast aðeins við þessa krakka (var með þau á leikskólanum mörg hver) ansi margar stelpur í þessum bekk úr gamla Sollustirðuhópnum mínum :) Líst vel á þau, kraftmiklir krakkar.

Auður mín klappaði ketti í gær og hún er svo stolt af sér :) Í gærmorgun þegar við vorum á leiðinni í leikskólan var Auður aðeins á undan mér og beið eftir mér úti á tröppum meðan ég hljóp inn að ná í eitthvað svo heyrði ég hana reka upp þvílíkt öskur og hljóp fram þá er hún komin inn og er að reyna að loka hurðinni og ég sá rétt glitta í kött fyrir neðan tröppurnar, ég fer til hennar og ætla að redda málunum með því að segja farðu burt köttur (sem virkar alltaf á ketti) en aumingjans kötturinn kom alltaf nær og nær og vildi bara koma inn ég fór þess vegna út til að koma kettinum í burtu en hann lét ekki segjast og stóð mjálmandi fyrir utan dyrnar og kom alltaf aftur ef ég setti hann niður þannig að ég varð að ná í Auði og halda á henni út í bíl. Við vorum auðvitað vissar um að hann vildi bara vera vinur okkar og koma í heimsókn og hún var voða spennt að sjá hann. Svo seinnipartinn löbbuðum við út í leikskóla í veislu og mættum kattargreyinu og þá var litla skrúfa aldeilis búin að gleypa við vinatalinu um köttinn og vildi endilega fá að klappa honum sem hún og gerði....já stórsigur unninn í gær! Hún sagði svo reyndar pabba sínum að hún hefði líka haldið á honum...en hún laug því auðvitað :)





föstudagur, 1. júní 2007

****

Föstudagur...vúhú!
Bökuðum pizzu í kvöldmatinn, strákarnir bökuðu sér sína eigin, voða fínar pizzur. Var að vinna í dag bæði upp í skóla og í leikskólanum...rosa gaman. Förum vestur á morgun það er ferming hjá Kristrúnu á sunnudaginn ég fer að vinna á morgun.
Auður var að horfa á Skoppu & Skrítlu um helgina síðustu og fyrir þáttinn segir þulur að öll börn í þættinum klæðist fötum frá ,,ákveðinni búð" (man ekki hvað hún heitir, Franska búðin). Þórhalli fannst þetta frekar óviðeigandi auglýsing þar sem markhópurinn eru börn frá 7 mán. aldri. Eiginlega svolítið fyndið því ég var einmitt að fatta það um daginn að það sem hún Auður biður um er auglýst í Emil og Söngvaborg, þeir þættir sem hún horfir mest á. Hún er s.s. sjúk í að kaupa Gotta ost og Svala og talar um það sem Gotti Gotti (mjög gjarna sungið) og ævintýra svali. Mér finnst þetta vægast sagt óhugnarleg staðreynd að verið sé að troða vörum upp á svona ung börn. Auglýsingar í barnaefni finnst mér ekki viðeigandi. Ég veit svo sem að þetta er gömul tugga og flestir eru meðvitaðir um þetta en mér finnst ömurlegt þegar maður fattar þessa tengingu með eigin börn. Svo er það meira að segja þannig að maður getur ekki hoppað yfir þessar auglýsingar á dvd diskum það finnst mér einna mest pirrandi því maður getur ekki einu sinni valið sjálfur hvort börnin manns horfi á þetta eða ekki. Er það ekki svolítið glatað að börn nú kunni frekar lagið Gotti, Gotti en ekki Guttivísur.
Ohh ég var svo rosalega dugleg í garðinum í gær....var að kantskera og rífa upp meðfram beðunum....er reyndar ekki einu sinni hálfnuð enda ansi stór garður og ég býst ekki við að ég komist í það fyrr en eftir helgi að klára.
Ég var að kenna í morgun og var með leiktíma og var að tefla við strák (drepskák) hann var nú ekki alveg klár á skákinni og skáldaði eftir hentuleika. Ég var nú svona að reyna að kenna honum mannganginn og reglurnar og sagði honum hvernig þetta hefði verið þegar ég var krakki, já, sagði hann íbygginn, en tímarnir breytast! Jamm ég er s.s. opinberlega orðin gamalmenni með mikla reynslu að baki :) greinilega farið að sjást fullmikið á mér hvað ég er gömul. Fór líka í frúin í Hamborg á ensku við einn 8 ára (sem hefur lært ensku af cartoon network) frekar fyndið var síðan spurð að því hvað 2 x 1022 væru og þurfti að svara án þess að hugsa mikið, ég panikaði og hugsaðið ekki rass...sagði þeim að þær væru ruglaðar og hreytti í þær að ég hefði verið með íslensku í aðalvali en ekki stærðfræði (nei gerði það nú ekki en leið pínu kjánalega). Þegar ég svo var að labba fram hjá skrifstofu skólastjórans heyrði ég þær spyrja hann að því sama, hann auðvitað svaraði strax enda var hann búinn að heyra spurninguna trilljón sinnum (þær voru s.s. fyrir utan skrifstofuna hans að spyrja þá sem gengu framhjá þannig að hann hafði nægan tíma til að melta svarið örugglega líka verið búinn að pikka það inn í vasareikni) glætan að hann hafi bara vitað þetta án þess að hugsa :)
Well well Þórhallur minn biður að heilsa
kossar Íris