Hafsteinn Einar
Nóg að gera á þessum bæ....strákarnir eru reyndar í Borganesi hjá mömmu og pabba svo það er nóg að gera hjá þeim ætla ég :) maður er reyndar svo þreyttur eftir vinnuna og sólina og alla útiveruna að maður bara leggst upp í sófa og drattast svo inn í ból um 10 á kvöldin þ.e. ef maður nær að halda sér vakandi svo lengi. Annars er bara voða ljúft að vera að vinna uppi á leikskóla hef verið á elstu deildinni sem er ósköp fínt og þar er ég í góðum félagskap barna og kvenna. Það er svo komið á hreint hvaða bekk ég fæ næsta vetur :) ég fæ annan 6. bekkinn, 6. ÍA (já ekki slæmt á Akranesi) og er mjög sátt við það, kannast aðeins við þessa krakka (var með þau á leikskólanum mörg hver) ansi margar stelpur í þessum bekk úr gamla Sollustirðuhópnum mínum :) Líst vel á þau, kraftmiklir krakkar.
Auður mín klappaði ketti í gær og hún er svo stolt af sér :) Í gærmorgun þegar við vorum á leiðinni í leikskólan var Auður aðeins á undan mér og beið eftir mér úti á tröppum meðan ég hljóp inn að ná í eitthvað svo heyrði ég hana reka upp þvílíkt öskur og hljóp fram þá er hún komin inn og er að reyna að loka hurðinni og ég sá rétt glitta í kött fyrir neðan tröppurnar, ég fer til hennar og ætla að redda málunum með því að segja farðu burt köttur (sem virkar alltaf á ketti) en aumingjans kötturinn kom alltaf nær og nær og vildi bara koma inn ég fór þess vegna út til að koma kettinum í burtu en hann lét ekki segjast og stóð mjálmandi fyrir utan dyrnar og kom alltaf aftur ef ég setti hann niður þannig að ég varð að ná í Auði og halda á henni út í bíl. Við vorum auðvitað vissar um að hann vildi bara vera vinur okkar og koma í heimsókn og hún var voða spennt að sjá hann. Svo seinnipartinn löbbuðum við út í leikskóla í veislu og mættum kattargreyinu og þá var litla skrúfa aldeilis búin að gleypa við vinatalinu um köttinn og vildi endilega fá að klappa honum sem hún og gerði....já stórsigur unninn í gær! Hún sagði svo reyndar pabba sínum að hún hefði líka haldið á honum...en hún laug því auðvitað :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli