jæja....ekki mikill áhugi þessa dagana eða vikurnar til þess að skrifa enda veðurguðirnir verið okkur íslendingum hliðhollir og ekki hægt að réttlæta mikið tölvustúss og hvað þá inniveru. Það passar reyndar sýnist mér á spánni fyrir næstu daga að það byrjar að rigna um það leyti sem ég fer í sumarfrí :) gat ekki verið öðruvísi. Við vorum á fótboltamóti með Ísak á síðustu helgi á Ólafsfirði, rosalega gaman og þeir stóðu sig eins og hetjur og okkar maður eins og klettur í vörninni skoraði reyndar tvö mörk og var afar ánægður með sig. Hann hefur verið hjá ömmu og afa á Seftjörn í sumar að miklu leyti og er nú staddur hjá mömmu og pabba á reiðnámskeiði, mikið um að vera hjá honum. Ég hef verið að kljást við gróðurofnæmi meira og minna í allt sumar og er orðin vægast sagt pirruð fyrir utan það hvað ég ber það illa :) er s.s. ekkert sérstaklega sæt þessa dagana. Út frá því séð er kannski ágætt að fá pínu rigningu annars pirrar mig ekkert mikið að vera hérna heima aðalega bara að vera í vinnunni enda alltaf verið að slá þar í kring.
Áttum FIMM ára brúðkaupsafmæli föstudaginn 13. júlí. Gerðum auðvitað minna í tilefni dagsins en erum samt sem áður afar lukkuleg með árangurinn! Erum enn afar hamingjusöm og ástfangin upp fyrir haus :)

Þórhallur er í sumarfríi og litla skott líka og hafa það held ég bara ósköp gott, sofa fram eftir og svona eitthvað að vesenast. Þau eru búin að ferðast svolítið já og Hafsteinn Einar líka og Ísak líka. Við ætlum svo að kíkja á Pétur, Bryndísi og börn um helgina í sumarbústað sem verður örugglega bara gaman þó spái rigningu. Bara þrír dagar eftir í vinnu og svo tekur við langþráð sumarfrí!!!!!! Mikið verður frábært að vera í 8 vikna sumarfríi næsta sumar.....bara lúxus eitthvað annað en þessar tvær vikur sem ég fæ núna en það er betra en ekki neitt.
Þangað til næst
Íris