já maður er búinn að vera vægast sagt í rólega kantinum hvað bloggerí varðar.....en maður hefur víst nóg annað að gera en að vafra í tölvunni. En nú er skólinn byrjaður og allir að komast í rútínu :) Ótrúlegt hvað maður verður samt alltaf hissa þegar byrjar að hausta, manni finnst alltaf eins og það sé fyrr á ferðinni en árin á undan.Vikan er búin að vera heldur annasöm hjá mér, byrjaði að vinna í skólanum á mánudaginn og er nánast búin að vera að vinna síðan þá, já það er sko nóg að skipuleggja og gera, en hrikalega gaman þó ekki sé laust við að maður sé með pínu samviskubit yfir því að vera að vinna svona mikið. Annars virðist hann Þórhallur minn ekkert þjást af athyglisleysi því hann skellti sér vestur á Barðaströnd um helgina í veiðiferð með strákunum að vestan. Annars verð ég oft þannig þegar ég er spennt að ég tala út í eitt og þessi vika var engin undantekning svo hann hefur kannski bara verið kominn með nóg af samskiptum við mig :)
Við höfum nú bara haft það voða gott í fjarveru pabbans, það brutust út mikil fagnaðarlæti þegar ég sagði strákunum að pabbi þeirra yrði ekki heima um helgina (ekki það að hann sé svona rosalega leiðinlegur) því við erum nefnilega vön að slá upp veislu þegar annað
okkar er ekki heima (hljómar hrikalega, ekki satt) held það hljóti að vera til þess að fylla upp í tómarúmið sem myndast þegar vantar annað okkar :) Nóg um það....eins gott að tapa sér ekki algjörlega í væmninni! við fórum til RVK í dag, Ísak varð reyndar eftir hjá afa sínum og ömmu til að fylgjast með hálandaleikunum uppi í skógrækt, en við þrjú fórum að kaupa skóladót...ógeðslega er dýrt að starta skólanum.....rúmlega 8000 kr. og þó keypti ég ekki allt á listanum því sumt er einfaldlega til á heimilinu....glatað! En það var rosa gaman hjá okkur þau voru reyndar eins og svart og hvítt systkinin í búðum. Hafsteinn eins og hugur manns, jafnvel verri en ég í að þurfa að skoða :) og Auður........., einmitt! Ég reyndi ýmislegt til að halda henni góðri og var m.a. komin út í mútur og hótaði að senda hana út í bíl (gott uppeldi þar á ferðinni) hún var reyndar mjög sátt við þá tillögu :) Múturnar virkuðu heldur ekki nógu vel, ætluðum að kaupa nammi fyrir þá sem yrðu glaðir í búðinni....ég eyddi megninu af tímanum í búðinni að minna hana á það og að tala í staðinn fyrir að væla.....en hún fékk að sjálfsögðu nammi þessi elska í lok ferðarinnar :) enda hefur henni pottþétt þótt hún eiga það skilið fyrir 2-3 tíma af illri meðferð (s.s. búðarrápi) get svo sem alveg tekið undir það sjónarmið.
okkar er ekki heima (hljómar hrikalega, ekki satt) held það hljóti að vera til þess að fylla upp í tómarúmið sem myndast þegar vantar annað okkar :) Nóg um það....eins gott að tapa sér ekki algjörlega í væmninni! við fórum til RVK í dag, Ísak varð reyndar eftir hjá afa sínum og ömmu til að fylgjast með hálandaleikunum uppi í skógrækt, en við þrjú fórum að kaupa skóladót...ógeðslega er dýrt að starta skólanum.....rúmlega 8000 kr. og þó keypti ég ekki allt á listanum því sumt er einfaldlega til á heimilinu....glatað! En það var rosa gaman hjá okkur þau voru reyndar eins og svart og hvítt systkinin í búðum. Hafsteinn eins og hugur manns, jafnvel verri en ég í að þurfa að skoða :) og Auður........., einmitt! Ég reyndi ýmislegt til að halda henni góðri og var m.a. komin út í mútur og hótaði að senda hana út í bíl (gott uppeldi þar á ferðinni) hún var reyndar mjög sátt við þá tillögu :) Múturnar virkuðu heldur ekki nógu vel, ætluðum að kaupa nammi fyrir þá sem yrðu glaðir í búðinni....ég eyddi megninu af tímanum í búðinni að minna hana á það og að tala í staðinn fyrir að væla.....en hún fékk að sjálfsögðu nammi þessi elska í lok ferðarinnar :) enda hefur henni pottþétt þótt hún eiga það skilið fyrir 2-3 tíma af illri meðferð (s.s. búðarrápi) get svo sem alveg tekið undir það sjónarmið. Samt sem áður góður dagur!
Íris