mánudagur, 24. september 2007

NASTROVJA!


jæja, Pólland var frábært. Skemmtum okkur hrikalega vel. Brúðkaupið var ævintýri líkast og á tímabili sátum við bara dolfallin og horfðum á. Það er engin vitleysa með að pólsk brúðkaup séu skemmtileg. Strax þegar veislan byrjaði var fólk byrjað að dansa...og allir dansa og kunna að dansa. Bara stórkoslegt. Förum klárlega aftur til Póllands :) Þegar veislan var rétt byrjuð var ég frekar þreytt og fór að spyrjast um hvenær veislan yrði búin...kl. fimm morguninn eftir var mér sagt og ég hélt ég yrði ekki eldri....en það rættist nú úr þessu og kl. fjögur fórum við heim og hefðum alveg þolað við nokkuð lengur.

Annars allt fínt að frétta, Ísak og Þórhallur fóru vestur að smala um helgina - förum svo öll á næstu helgi. Hafsteinn Einar fór til pabba síns svo við vorum bara tvær að skottast hérna heima mæðgurnar...höfðum það alveg ágætt.

Allir frekar kvefaðir hérna á heimilinu en það fylgir víst árstíðinni :) hrikalega pirrandi samt.

kveðja Íris

miðvikudagur, 12. september 2007

hvar er ég ef ég er ekki til

GOD! Ef ég er ekki andlega uppþornuð þessa dagana þá veit ég ekki hvað......leiðist svo sem ekki og það er kannski ljósi punkturinn í þessu öllu saman. Lífið hjá mér þessa dagana gengur út á samskipti, samskipti og já samskipti. Þegar ég kem heim á daginn er ég bara dofin og hef ekki orku í rass í bala. Ég er svo upptekin að ég hef ekki einu sinni treyst mér til að hlakka til ferðarinnar til Póllands.....hef einsett mér að byrja ekki að hlakka til fyrr en eftir vinnu á morgun...JEI! Ef þið eigið í samskiptavandamálum þá er ég pottþétt manneskjan til að tala við, er í mjög góðri þjálfun.
En.........................
Vorum að kaupa okkur sófasett í dag....held ég, það kemur vonandi á morgun og ég ætla að vera rosalega dugleg í kvöld og laga til fyrir þennan nýja fjölskyldumeðlim....skúra og þurrka af...oh hvað verður gaman hjá mér í kvöld :)
Í sumar heyrði ég einn brandara ansi oft við matarborðiðí leikskólanum:
Kúk!
málið með þennan er að þegar maður er búinn að heyra hann trilljón sinnum þá verður hann rosa fyndinn, maður á líka að segja hann alveg upp úr þurru og helst við matarborðið þar sem margir eru samankomnir.
Núna er ég búin að læra nýjan brandara, af sama meiði, í skólanum. Hann á reyndar að segja eftir að einhver hefur sagt eitthvað. Svona er sá brandari:
Prump!
ég er ekki búin að heyra þennan trilljón sinnum en fer örugglega að nálgst það mark og bíð spennt eftir að hann verði fyndinn....galdurinn er kannski helst sá að sá sem segir brandarana verður alltaf að hlæja rosa mikið sjálfur, alltaf!
Hei, hvalbein!
Íris

mánudagur, 3. september 2007

.....OMG....!!!!

Við erum á leiðinni til Póllands 14. september!!!!! Erum að fara í brúðkaup hjá syni vinnufélaga Þórhalls, sem verður örugglega ekki leiðinlegt. Nokkuð sátt s.s. þessa dagana :) Annars er svona bara minna í fréttum, allt ágætt svo sem, allir glaðir og kátir á heimilinu og sáttir í sínu. Nei, nei bara að koma þessu með Póllandsferðina á framfæri :) JEBB, bara lukka!
Seinna
Íris