fimmtudagur, 29. nóvember 2007

svoooo myndarleg

Húsmóðirin ég saumaði jólagardínur í kvöld. Ég held ég sé nokkuð örugg um að Þórhallur minn geri ekki grín að þeim í þetta skiptið. Þær eru nokkuð beinar og sýnast nokkuð eins. Ég er nokkuð sátt!
Við hjónin erum að fara á jólahlaðborð á morgun, það gæti meira að segja farið svo að Þórhallur þurfi að vera bílstjóri því snillingarnir í jólanefndinni ákváðu að hafa jólahlaðborðið uppi í Hvalfirði og láta alla keyra þangað???? Veit ekki hvað þeim gengur til og þetta frétti ég í gær....eins og flestir aðrir svo nú eru allir að rembast við að finna sér bílstjóra.....við erum að tala um 60 - 70 manns. Glatað! Jæja það verður samt sem áður notalegt að fara aðeins út á lífið.
Auður er ekki þriggja ára...hún eiginlega tekur það ekki í mál, finnst það lítið á fingrum og vill frekar vera fimm eða sex ára...skiljanlegt auðvitað það fylgja því auðvitað ákveðnir kostir. Annars er hún himinlifandi yfir hljómborðinu sem hún fékk í afmælisgjöf. Vaknaði í morgun, labbaði fram og sagðist vera farin að spila. Æ hún var svo fyndin í morgun, hún átti sem sagt að vekja bræður sína og það er nú svona dagamunur á því hvor þeirra henni finnst skárri. Í morgun var það Hafsteinn. Hún byrjaði á að labba inn til Ísaks með hendur á mjöðmum fremur ólundarleg og rak hann á fætur svo trítlaði hún inn til H.E. og sagði afar blíðlega, ,,Hafsteinn vakna, farðu að klæða þig". Já þetta er misjafnt :)
Þórhallur minn var svo duglegur að baka fyrir afmælishátíð í skólanum hjá Ísak, kom svo í ljós að Ísak á að koma með köku á afmælishátíðina eftir áramót....Þórhallur þrætti, því hann las miðann. Hann er duglegur að baka karlinn í nýju hrærivélinni....ég tók svo til eftir hann þegar ég kom heim úr vinnu.....jamm það er lúxus að þurfa ekki að taka til eftir sig. Allar konur þurfa að eiga eitt stykki konu....guð hvað lífið væri ljúft!

miðvikudagur, 28. nóvember 2007

afmælisbarnið

Fallega dóttir okkar á afmæli í dag, orðin þriggja ára. Við vöktum hana með söng og pökkum í morgun og hún fór með ís á leikskólann. Núna er hún að perla og horfa á Mjallhvít. Þessi elska hefur svo sannarlega gefið okkur mikið með því að vera til. Það er ekki sjaldan sem við horfum brosandi á og dáumst að þessari stelpu. Strákarnir eru svo mikið eldri en hún að þeir eru alveg jafn dolfallnir yfir því hvað hún er einstök og við foreldrarnir. Hún hefur einstakt lag á að koma manni til að hlæja.

Þegar hún fæddist var hún eldrauð og kvartaði heil ósköp. Það hefur þó hvort tveggja vaxið af henni og má segja að hún sé nokkuð geðgóð og taki vel tilsögn. Hún fékk gítar í afmælisgjöf -alveg eins og hún hafði óskað sér, hún fékk líka hljómborð með mikrafoni....mikið spilað og sungið.

laugardagur, 24. nóvember 2007

Háttatími

Á kvöldin les ég fyrir hana dóttur mína og syng...hún á sér uppáhalds sögur og söngva alveg eins og bræður hennar þegar þeir voru litlir. Auður er þó öllu mýkri og vill síður hamagang og læti. Sögupersónurnar hafa því á undanförnum árum breyst töluvert....hörðustu drekar verða að vera mjúkraddaðir auk þess sem mér finnst hún taka meira inn á sig atburði í sögum. Hún er líka vandlátari á söngva en bræður hennar voru. Fyrir Hafstein mátti syngja jafnt á íslensku sem útlensku, hann lærði allt sem maður söng fyrir hann svo oft varð maður að finna ný lög til að syngja hreinlega svo hann sofnaði einhverntíma. Auður vill ekki heyra útlensk lög og verður helst að hafa heyrt þau nokkrum sinnum til að hægt sé að syngja þau. Ísak var mjög hrifinn af því að maður breytti lögum og hefði einhverja sem hann þekkti í þeim e.o. þegar pabbi fór á sjóinn þá var sól um alla jörð og hún sat á bryggjupollanum hún mamma..... ég þurfti reyndar að venja hann af því lagi því ég var komin með nett ógeð á því :) Fyrir Auði verð ég að syngja rokkarnir eru þagnaðir (lullu lullu bía), pálína með prikið og ég skal mála allan heiminn sem hún kallar ýmist mömmulagið eða blómalagið. Þessi þrjú lög eru alltaf lokalögin og hún minnir mig alltaf á þau áður en ég fer fram. Þó maður sé stundum latur að fara inn að svæfa og mér finnist ósköp gott þegar Þórhallur tekur þetta að sér þá eru þetta dýrmætar stundir sem fylgja sérstakar hefðir. Mér finnst gaman að fara inn með Ísak og lesa fyrir hann (enda er það skylda hans á meðan að krulla í hárinu á mér) samt er ég allt of löt við að koma mér í það. Hafsteinn held ég að kæri sig lítið um eitt stykki mömmu inni í rúmi hjá sér áður en hann fer að sofa. Okkar stundir núna eru kannski helst að ég plata hann með mér á rúntinn...á vídeóleiguna. Þetta eru stuttar og sjaldgæfar stundir en mjög dýrmætar fyrir mér og við getum enn hlegið að sumum þeirra.
Nú er ég að reyna að þjálfa Auði mína upp í að kunna að meta Grýlukvæði, jólasveinavísurnar og kvæðið um jólaköttinn. Hún var skíthrædd við jólasveina í fyrra en ég vona að hún sé skárri þetta árið. Ég hef líka verið að reyna að venja hana við Grýluröddina mína en það hefur hingað til ekki gengið svo vel. Hún virðist ekki skilja skemmtanagildið við hana (það gerðu strákarnir aftur á móti, hún verður bara hrædd). Hún er þó að verða sátt við Glanna glæp og Kobba kló sem hún kallar dlanni blauduð og klobbi kló :) vafasamir náungar :)

þriðjudagur, 20. nóvember 2007

Ný myndasíða

Var að búa til nýja myndasíðu....sjá tengil hér til hliðar ------>

Október albúmið er aðeins í klikki, maður þarf að klikka á myndirnar til að sjá þær..nóg reyndar að klikka á þá fyrstu og fara svo í örina og fletta....endilega kíkjið á fallega fólkið!

sunnudagur, 18. nóvember 2007

*****

já nú er maður bara alveg að verða löggiltur bloggari....allavega ég (Íris) Þórhallur er öllu slakari. Helgin búin að vera nokkuð fín hjá okkur, búin að hitta fullt af fólki...afmæli og gestir, bara nokkuð fínt.

Hér fyrir neðan er mynd af Auði og Litla-Kút. Hún er mikið að elda þessa dagana fékk nefnilega eldhús sem Þuríður frænka hennar var hætt að nota.....hún er alsæl og býður reglulega í kaffi. Fékk Hafstein Einar og Matta vin hans í kaffiboð um daginn og var mjög hamingjusöm. Æ hún er algjör elska :)

föstudagur, 16. nóvember 2007

Dagur íslenskrar tungu

Einn af mínum uppáhalds dögum bæði vegna þess að pabbi á afmæli og að þessi dagur er helgaður íslenskri tungu. Vill þó svo skemmtilega til að ég er heima og missi þess vegna af allri dagskrá tengdri deginum. 6. bekkirnir eru búnir að vera að æfa atriði saman og frekar fúlt að missa af því. Leit ansi vel út hjá þeim. En við Auður erum bara heima, veikar en erum að koma til. Auður komin á penisilín en er orðin helv.... fúl af allri inniverunni....ég sömuleiðis!
Set hér inn eitt fyrsta ljóðið sem ég lærði úr gömlu skólaljóðunum (bláu bókinni) en þetta ljóð lærði ég þegar Sóley frænka var að læra það og mér fannst það svo flott að ég sat með bókina þangað til ég hafði lært það. Vill svo skemmtilega til að ljóðið er eftir afmælisbarn dagsins, þó ekki pabba. Fæ enn kökk í hálsinn við að lesa þetta ljóð.

MÓÐURÁST
Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel,
í fjallinu dunar, en komið er él,
snjóskýin þjóta svo ótt og svo ótt.
Auganu hverfur um heldimma nótt
vegur á klakanum kalda.

Hver er in grátna, sem gengur um hjarn,
götunnar leitar, og sofandi barn
hylur í faðmi og frostinu ver,
fögur í tárum? En mátturinn þver.
Hún orkar ei áfram að halda.

"Sonur minn góði! Þú sefur í værð,
sérð ei né skilur þá hörmunga stærð,
sem að þér ógnar og á dynja fer.
Eilífi guðssonur, hjálpaðu mér
saklausu barninu að bjarga.

Sonur minn blíðasti, sofðu nú rótt.
Sofa vil ég líka þá skelfingarnótt.
Sofðu! Ég hjúkra og hlífi þér vel.
Hjúkrar þér móðir, svo grimmasta él
má ekki fjörinu farga".

Fýkur yfir hæðir og frostkalda leið,
fannburðinn eykur um miðnæturskeið.
Snjóskýjabólstrunum blásvörtu frá
beljandi vindur um hauður og lá
í dimmunni þunglega þýtur.

Svo, þegar dagur úr dökkvanum rís,
dauð er hún fundin á kolbláum ís.
Snjóhvíta fannblæju lagði yfir lík
líknandi vetur, en miskunnarrík
sól móti sveininum lítur.

Því að hann lifir og brosir og býr
bjargandi móður í skjólinu hlýr,
reifaður klæðnaði brúðar, sem bjó
barninu værðir og lágt undir snjó
fölnuð í frostinu sefur.

Neisti guðs líknsemdar, ljómandi skær,
lífinu beztan er unaðinn fær,
móðurást blíðasta, börnunum háð,
blessi þig jafnan og efli þitt ráð
guð, sem að ávöxtinn gefur.

miðvikudagur, 14. nóvember 2007

.....

Jahá...bara allt að gerast! Ótrúlegur dugnaður í bloggeríi.
Skrudda er búin að vera veik síðan á mánudag, verðum heima aftur á morgun. Hún er svo sem nokkuð spræk en samt með hita og komin með útbrot þannig að hún kemst ekki í leikskólann á morgun. Rétt að líða að afmæli og daman vill fá gítar í afmælisgjöf og marga og fullum pakka. Hún þarf líka nauðsynlega að heyra í Siggu ömmu sinni því hana vantar afmælisdiska, glös og svoleiðis. Amman keypti nefnilega svoleiðis fyrir hana um daginn, tvisvar í röð svo hún er fyrir vikið sjálfskipaður innkaupastjóri fyrir afmælisveislur á heimilinu.
Hafsteinn Einar var að koma heim úr ræktinni....hann er gjörsamlega að tapa sér barnið....hann er ótrúlegur en voða ánægður með sig, tekur mömmu sína í sjómann já og kennarann sinn líka og alla í bekknum. Massa tröll!
Hafsteinn minn er hættur að segja ,,ég kunnti þetta alveg" (í staðinn fyrir ég kunni þetta...) ég fann nefnilega töfralausnina, bað hann um að setja sögnina kunnti í nafnhátt sem væri þá að kunnta og bað hann svo að fletta orðinu, þá kunta, upp í orðabók. Ég sagði honum að hann myndi aldrei nota þetta orð vitlaust aftur um leið og hann vissi hvað það þýddi.....það stóðst!
Jæja ætli maður verði ekki að fara að hætta þessu skriferíi og fara að elda. Ótrúlegur metnaður lagður í eldamennskuna í kvöld, pulsur!
Íris

þriðjudagur, 6. nóvember 2007

Þú ert bara lítill!!!

Samkvæmt yngsta fjölskyldumeðliminum, Auði, er það allra versta sem til er, það að vera lítil. Hún er að sjálfsögðu stór en ef einhver vogar sér að gera nokkuð á hennar hlut þá er hinn sami lítill. Pabbi hennar er mjög oft lítill, mamman er alveg sátt við að vera lítil (ekkert gaman að bauna því á hana, enda er það liður í því að sætta sig við raunveruleikann og búa sig undir það sem koma skal þegar allir, ef guð lofar, verða orðnir stærri en hún). Hún er afar viðkvæm fyrir þessu og má ekki heyra nokkuð í líkingu við það að vera lítil eins og krútta, elskan, skotta og margt fleira og svarar þá með því að hún sé ekki lítil :) Mikið hitamál hérna inni á heimilinu! Fyrir utan þetta er hún hress og kát.


Ótrúlegt samt hvað það er miklu erfiðara að fara með Auði út í búð en strákana þegar þeir voru á hennar aldri....man reyndar eftir Ísak í búðastraffi en þá var hann 7 ára. Hún þarf að sitja ofan í kerrunni (af því hún er svo stór) kaupa sokka, snuddu, sjampó o.fl. o.fl. Ég fór reyndar með þau öll í búð um daginn og þau skiptust afar bróðurlega á að spyrja hvort ég vildi kaupa þetta og hitt fyrir þau.......mér fannst það reyndar hrikalega fyndið (þó leiðinlegt væri) þau voru eins og svangir ungar. En búðir eru kjöraðstæður til þess að ala upp börn og næg eru tilefnin :)


Strax kominn þriðjudagur, það er eins og það hafi verið sunnudagur í gær, samt væri ég ekkert hissa þó það væri miðvikudagur í dag. Er bara ósköp þakklát fyrir hvað tíminn líður hratt þessa dagana. Mér finnst ótrúlega stutt í jólin og hlakka mikið til að komast í jólafrí :)


Auður mín sofnuð, kl. er 17:40...matur eftir 10 mín (svo hún fengi að borða áður en hún sofnaði) kannski ekki best að liggja í tölvunni þegar barnið má ekki sofna alveg strax!


Íris