föstudagur, 16. nóvember 2007

Dagur íslenskrar tungu

Einn af mínum uppáhalds dögum bæði vegna þess að pabbi á afmæli og að þessi dagur er helgaður íslenskri tungu. Vill þó svo skemmtilega til að ég er heima og missi þess vegna af allri dagskrá tengdri deginum. 6. bekkirnir eru búnir að vera að æfa atriði saman og frekar fúlt að missa af því. Leit ansi vel út hjá þeim. En við Auður erum bara heima, veikar en erum að koma til. Auður komin á penisilín en er orðin helv.... fúl af allri inniverunni....ég sömuleiðis!
Set hér inn eitt fyrsta ljóðið sem ég lærði úr gömlu skólaljóðunum (bláu bókinni) en þetta ljóð lærði ég þegar Sóley frænka var að læra það og mér fannst það svo flott að ég sat með bókina þangað til ég hafði lært það. Vill svo skemmtilega til að ljóðið er eftir afmælisbarn dagsins, þó ekki pabba. Fæ enn kökk í hálsinn við að lesa þetta ljóð.

MÓÐURÁST
Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel,
í fjallinu dunar, en komið er él,
snjóskýin þjóta svo ótt og svo ótt.
Auganu hverfur um heldimma nótt
vegur á klakanum kalda.

Hver er in grátna, sem gengur um hjarn,
götunnar leitar, og sofandi barn
hylur í faðmi og frostinu ver,
fögur í tárum? En mátturinn þver.
Hún orkar ei áfram að halda.

"Sonur minn góði! Þú sefur í værð,
sérð ei né skilur þá hörmunga stærð,
sem að þér ógnar og á dynja fer.
Eilífi guðssonur, hjálpaðu mér
saklausu barninu að bjarga.

Sonur minn blíðasti, sofðu nú rótt.
Sofa vil ég líka þá skelfingarnótt.
Sofðu! Ég hjúkra og hlífi þér vel.
Hjúkrar þér móðir, svo grimmasta él
má ekki fjörinu farga".

Fýkur yfir hæðir og frostkalda leið,
fannburðinn eykur um miðnæturskeið.
Snjóskýjabólstrunum blásvörtu frá
beljandi vindur um hauður og lá
í dimmunni þunglega þýtur.

Svo, þegar dagur úr dökkvanum rís,
dauð er hún fundin á kolbláum ís.
Snjóhvíta fannblæju lagði yfir lík
líknandi vetur, en miskunnarrík
sól móti sveininum lítur.

Því að hann lifir og brosir og býr
bjargandi móður í skjólinu hlýr,
reifaður klæðnaði brúðar, sem bjó
barninu værðir og lágt undir snjó
fölnuð í frostinu sefur.

Neisti guðs líknsemdar, ljómandi skær,
lífinu beztan er unaðinn fær,
móðurást blíðasta, börnunum háð,
blessi þig jafnan og efli þitt ráð
guð, sem að ávöxtinn gefur.

Engin ummæli: