þriðjudagur, 6. nóvember 2007

Þú ert bara lítill!!!

Samkvæmt yngsta fjölskyldumeðliminum, Auði, er það allra versta sem til er, það að vera lítil. Hún er að sjálfsögðu stór en ef einhver vogar sér að gera nokkuð á hennar hlut þá er hinn sami lítill. Pabbi hennar er mjög oft lítill, mamman er alveg sátt við að vera lítil (ekkert gaman að bauna því á hana, enda er það liður í því að sætta sig við raunveruleikann og búa sig undir það sem koma skal þegar allir, ef guð lofar, verða orðnir stærri en hún). Hún er afar viðkvæm fyrir þessu og má ekki heyra nokkuð í líkingu við það að vera lítil eins og krútta, elskan, skotta og margt fleira og svarar þá með því að hún sé ekki lítil :) Mikið hitamál hérna inni á heimilinu! Fyrir utan þetta er hún hress og kát.


Ótrúlegt samt hvað það er miklu erfiðara að fara með Auði út í búð en strákana þegar þeir voru á hennar aldri....man reyndar eftir Ísak í búðastraffi en þá var hann 7 ára. Hún þarf að sitja ofan í kerrunni (af því hún er svo stór) kaupa sokka, snuddu, sjampó o.fl. o.fl. Ég fór reyndar með þau öll í búð um daginn og þau skiptust afar bróðurlega á að spyrja hvort ég vildi kaupa þetta og hitt fyrir þau.......mér fannst það reyndar hrikalega fyndið (þó leiðinlegt væri) þau voru eins og svangir ungar. En búðir eru kjöraðstæður til þess að ala upp börn og næg eru tilefnin :)


Strax kominn þriðjudagur, það er eins og það hafi verið sunnudagur í gær, samt væri ég ekkert hissa þó það væri miðvikudagur í dag. Er bara ósköp þakklát fyrir hvað tíminn líður hratt þessa dagana. Mér finnst ótrúlega stutt í jólin og hlakka mikið til að komast í jólafrí :)


Auður mín sofnuð, kl. er 17:40...matur eftir 10 mín (svo hún fengi að borða áður en hún sofnaði) kannski ekki best að liggja í tölvunni þegar barnið má ekki sofna alveg strax!


Íris

Engin ummæli: