sunnudagur, 23. desember 2007

jólin, jólin

Komin með exem af tiltekt á þrifhöndina, þrútin um augu og í þokkabót er konunglegur eiginmaður minn með flensu svo ég hef þurft að sinna honum líka. Nei, nei....Þórhallur er reyndar veikur en ég er nú ekkert á barmi taugaáfalls þó það hljómi svo (nema ég sé í bullandi afneitun) :)
Fórum í bæinn í dag og keyptum jólatré og fleira sem vantaði. Pabbi, Haraldur og Kristján bræður mínir ætla að kíkja á morgun....pabbi s.s. á landinu. Það verður fínt að sjá framan í kallana enda nauðsynlegt svona einu sinni á 2ja ára fresti. Já langt síðan við höfum sést, þannig að við erum voða spennt að sjá þá.
Þórhallur minn er farinn inn í rúm og miðað við lætin í honum þá býst ég við að ég verði að láta hann sofa frammi í sófa (helv.. gelt í karlinum) já ég er víst ekki sú umhyggjusamasta þegar kemur að veikindum annarra, jæja ég náði nú samt í sokka fyrir hann og fór nokkrar vatnsferðir fyrir utan að ég strauk á honum tærnar. Ég er samt auðvitað ekki mamma hans svo ég býst við að ég verði seint fullgild veikindaraðhlynningarmanneskja í hans augum. Hún Sigga mín kann nú líka að hugsa um þessa gorma sína þannig að þeim líki vel. Ísak veit fátt betra en að komast í ömmu holu og kúra og fá svo morgunmat að eigin vali...
Skata á morgun, sjóða hangikjöt, skreyta jólatréð!
ALLT AÐ GERAST!
á morgun þegar ég vakna verða jólin á morgun
Já mamma mín ég held að eldvarnafulltrúar séu töluvert neðar í metorðastiganum en afkomendur kónga...hvað varð annars um titilinn aðstoðarslökkviliðsstjórafrú??? Jæja þú getur þó alltaf spókað þig með barnabörnin, þau eru að sjálfsögðu konungborin, þú ættir að fá einhver fríðindi út á það...allavega ánægjuna. Æ þú veist hvað þau eru fyndin og skemmtileg þessi kóngabörn...það er þeim svo eðlislægt eins og þú skilur :)

föstudagur, 21. desember 2007

Kóngurinn og ég

Jæja hann Þórhallur minn er konungborinn....þessu komst hann sonur minn, prinsinn, að í dag þegar hann var á vappi um íslendingabók. Forfaðir þeirra var norskur konungur....jah svona er þetta. Ég vissi nú alltaf að hann Þórhallur minn væri sérstakur en að hann væri konungborinn maðurinn það datt mér aldrei í hug. (Þó auðvitað sé ég klárlega ákveðið munstur þegar ég lít til baka) Já svona er þetta sumir eru einfaldlega bara betur giftir en aðrir.
jólafrí
laga til
hlusta á trilljón jólalög
Bíð hér spennt með spariskóna og kjólinn
-bíð hér spennt því að senn koma blessuð jólin!

fimmtudagur, 13. desember 2007

dugnaður

Hér sit ég kófsveitt, eldrauð...móð og másandi. Var að enda við að pakka inn sófasetti sem ég er að fara að senda vestur á firði, ætlaði að vera löngu búin að þessu en þetta hefur verið eins og að fara í bankann eða taka bensín...eitthvað sem ég dreg fram á síðustu stundu. En ég hringdi í ÞÞÞ í dag og pantaði far svo ekki var aftur snúið. Bara 4 kennsludagar eftir + jólaball og síðan jólafrí!!! Var að klára bókina Benjamín dúfu fyrir bekkinn minn í dag....hún er svo sorgleg að ég var heillengi að jafna mig. Þrjá síðustu kaflana hugsaði ég það eitt að fara ekki að gráta fyrir framan börnin. En mikið er gaman að vinna þetta með þeim.
Strákarnir voru að fá aðgang að íslendingabók í dag og hafa því grúskað í ættfræði í allan dag og fram á kvöld. Ísak fannst furðulegt hvernig skiptingin varð, ég skyld öllum fótboltaköppunum en pabbi hans ljóðskáldunum og merkismönnum á borð við Jónas Hallgrímsson og Egil Skallagrímsson. Komumst að því að Atli vinur Hafsteins er ættaður frá Barðaströnd og ekki nóg með það heldur var tvíburabróðir afa á Brjánslæk, Árni, langa, langa afi hans...fyndið. Eins er kennarinn hans Ísaks og Þórhallur fjórmenningar. Og ekki má gleyma ættarnafninu Torlacius sem strákunum finnst sjálfsagt að taka upp.
Ísak fór í klippingu í dag og tuðaði allan tíman, eins og honum er einum lagið. Auður vildi ólm fara í klippingu var með úlfa og orma í hárinu sem varð að klippa úr. Ég fullvissaði hana um að hún fengi verðlaun þó hún yrði ekki klippt....hún var sátt við það þangað til rakarinn fór með Ísak inn í herbergið þar sem nammið er geymt þá var henni allri lokið og brast í grát því hún hélt hún fengi engan ís sem hún auðvitað fékk, hvað annað.
Ísak finnst jólasveinarnir nískir í ár!

þriðjudagur, 11. desember 2007

Tjekkatauuð kom fyrstur......

Hann Ísak minn tilkynnti mér í kvöldmatnum að hann ætlaði að vera framsóknar andstæðingur??? Ég skildi auðvitað ekki alveg hvað hann var að fara kúturinn og fór að spyrja hann út í þetta....já sko, sagði hann, ég er meira svona vinstri grænn nei ég meina hægri grænn. Nei andskotinn sagði ég ertu ekki að rugla eitthvað núna það eru ekki til hægri grænir þú ætlar þó ekki að verða hægri maður. Jú ég er rétthentur þá get ég ekki verið vinstri neitt????
Næst á dagskrá hjá mér er sem sagt að fara með stjórnmálaþuluna sem hún mamma mín kenndi mér :)
vinstri menn vilja að allir séu jafnir og hafi sama rétt, það vilja hægri menn ekki :) Hvaða barn getur staðist þessa ræðu, sérstaklega þegar réttlætiskenndin er í hámarki!!!! jeg trui tad virkar flott!
Annars kom kúturinn með heila FIMM íþróttapoka úr skólanum.....ekki furða að hér þurrki fólk sér með þvottapokum!
Auður er mjög spennt fyrir jólasveinunum, ,,tjekkatauuð tjemuð með pakka handa méð, hann er vinur þinn hann ætlar að títla þig", sagði hún við pabba sinn í símann áðan :)
Stóri krúttus ekki heima, borðar hjá Matta vini sínum.....kemur heim á eftir er og verður að vera heima í kvöld :) það verður stuð hjá okkur á eftir að læra undir líffræðipróf...hver veit ekki hvað ríbósóm, hvatberar, safabólur og leysikorn eru...I wonder*/&%$$##%$#E% Mikið hlakka ég til því ég veit hann verður mjög glaður að læra og ég tala nú ekki um að læra eins lengi og ég tel þörf...jamm mín bíður vægast sagt hressandi kvöldskemmtun....jæja þá hefst það!!! unglingurinn var að sleppa inn...vel smurður um höfuðið með d:fi, buxurnar passlega mikið á hælunum, hýjung á vanga og ilmar eins og sápubúðin í Kringlunni. BARA TÖFFARI! Æ það er svo gaman að eiga ungling...hann er líka svo mikið æði þessi stákur minn, passar líka svo vel upp á mömmuna sína.

Íris

mánudagur, 10. desember 2007

við fögnum í friði og ró...

Hér á bæ ríkir mikil tilhlökkun til jólanna. Auður mín elskuleg spyr á korters fresti hvað klukkan sé því einhver (örugglega ég) hafði sagt henni að jólin byrji svo kl. 18:00. Hún var reyndar orðin svoldið þreytt á þessu í gær, koma jólin aldrei, þá var hún búin að spyrja í tvo sólarhringa :) æ litla krúttan. Ég sjálf er reyndar svo spennt fyrir því að komast í jólafrí að ég varð að trappa mig niður í morgun því ég geri mér fyllilega grein fyrir að ég kemst ekki í gegnum vikuna SVONA HÆBER, neibb er samt eins og ég hafi drukkið aðeins of marga kaffibolla :) já, já tala allt of mikið og get ekki setið kyrr, meira að segja núna þegar ég skrifa þetta eru fæturnir á fullu.
Ísak minn greyið fékk skammir í dag frá kennaranum sínum því hann hafði í gríni sagt BTT við bekkjabróður sinn gleymdi bara að segja að þetta væri í gríni. Ég skildi reyndar ekkert hvað BTT þýðir en það þýðir víst brjálaður typpatogari (dóni hann sonur minn) ég varð reyndar svo glöð inni í sjálfri mér að sonur minn væri búin að öðlast þessa færni að skamstafa svona, í bullandi framför drengurinn. Samt sem áður eru þessi orð á algjörum bannlista. Svona sér maður börnin sín samt alltaf í einhverjum stjörnuglans með geislabaug.
Fórum á jólahlaðborð sl. föstudag. Vel heppnuð gleði....góður matur, fínn félagsskapur og dansað fram á rauða.
Íris