Hér sit ég kófsveitt, eldrauð...móð og másandi. Var að enda við að pakka inn sófasetti sem ég er að fara að senda vestur á firði, ætlaði að vera löngu búin að þessu en þetta hefur verið eins og að fara í bankann eða taka bensín...eitthvað sem ég dreg fram á síðustu stundu. En ég hringdi í ÞÞÞ í dag og pantaði far svo ekki var aftur snúið. Bara 4 kennsludagar eftir + jólaball og síðan jólafrí!!! Var að klára bókina Benjamín dúfu fyrir bekkinn minn í dag....hún er svo sorgleg að ég var heillengi að jafna mig. Þrjá síðustu kaflana hugsaði ég það eitt að fara ekki að gráta fyrir framan börnin. En mikið er gaman að vinna þetta með þeim.
Strákarnir voru að fá aðgang að íslendingabók í dag og hafa því grúskað í ættfræði í allan dag og fram á kvöld. Ísak fannst furðulegt hvernig skiptingin varð, ég skyld öllum fótboltaköppunum en pabbi hans ljóðskáldunum og merkismönnum á borð við Jónas Hallgrímsson og Egil Skallagrímsson. Komumst að því að Atli vinur Hafsteins er ættaður frá Barðaströnd og ekki nóg með það heldur var tvíburabróðir afa á Brjánslæk, Árni, langa, langa afi hans...fyndið. Eins er kennarinn hans Ísaks og Þórhallur fjórmenningar. Og ekki má gleyma ættarnafninu Torlacius sem strákunum finnst sjálfsagt að taka upp.
Ísak fór í klippingu í dag og tuðaði allan tíman, eins og honum er einum lagið. Auður vildi ólm fara í klippingu var með úlfa og orma í hárinu sem varð að klippa úr. Ég fullvissaði hana um að hún fengi verðlaun þó hún yrði ekki klippt....hún var sátt við það þangað til rakarinn fór með Ísak inn í herbergið þar sem nammið er geymt þá var henni allri lokið og brast í grát því hún hélt hún fengi engan ís sem hún auðvitað fékk, hvað annað.
Ísak finnst jólasveinarnir nískir í ár!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli