mánudagur, 10. desember 2007

við fögnum í friði og ró...

Hér á bæ ríkir mikil tilhlökkun til jólanna. Auður mín elskuleg spyr á korters fresti hvað klukkan sé því einhver (örugglega ég) hafði sagt henni að jólin byrji svo kl. 18:00. Hún var reyndar orðin svoldið þreytt á þessu í gær, koma jólin aldrei, þá var hún búin að spyrja í tvo sólarhringa :) æ litla krúttan. Ég sjálf er reyndar svo spennt fyrir því að komast í jólafrí að ég varð að trappa mig niður í morgun því ég geri mér fyllilega grein fyrir að ég kemst ekki í gegnum vikuna SVONA HÆBER, neibb er samt eins og ég hafi drukkið aðeins of marga kaffibolla :) já, já tala allt of mikið og get ekki setið kyrr, meira að segja núna þegar ég skrifa þetta eru fæturnir á fullu.
Ísak minn greyið fékk skammir í dag frá kennaranum sínum því hann hafði í gríni sagt BTT við bekkjabróður sinn gleymdi bara að segja að þetta væri í gríni. Ég skildi reyndar ekkert hvað BTT þýðir en það þýðir víst brjálaður typpatogari (dóni hann sonur minn) ég varð reyndar svo glöð inni í sjálfri mér að sonur minn væri búin að öðlast þessa færni að skamstafa svona, í bullandi framför drengurinn. Samt sem áður eru þessi orð á algjörum bannlista. Svona sér maður börnin sín samt alltaf í einhverjum stjörnuglans með geislabaug.
Fórum á jólahlaðborð sl. föstudag. Vel heppnuð gleði....góður matur, fínn félagsskapur og dansað fram á rauða.
Íris

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ frænka..sá inná síðunni hennar Steinunnar að þú værir með blogg,,,mann verður nátturulega að kíkja aðeins þegar maður kemmst að env svona ahhaha,,rosaleg eru krakkarnir orðin stór,,falleg og vel lukkuð börn ´;-)jæja langaði bara rétt að segja hæ
med venig hilsen fra dk
Silja Ruth og fjölsk
(horsensfamilie.bloggar.is)