þriðjudagur, 29. janúar 2008

Alveg að verða tjúlluð bara....alveg!

Já það er aldeilis að ég er dugleg að blogga. Þórhallur minn er að fara á fjármálanámskeið á fimmtudaginn. Fyrir tímann þarf hann að vera búinn að fylla inn á skjal allar upplýsingar um fjárhag okkar. Þ.á.m. er liður um einkaneyslu, og hvað eyðir þú miklu Íris mín sagði hann. Hann taldi að það væri nú u.þ.b. 10.000 krónur en ég tel víst að talan sé töluvert hærri, því stundum kaupi ég kartöflur af því mig hreinlega langar í þær. Ég þarf greinilega að fara að vanda betur hvað ég eyði 10.000 krónunum mínum í því það má guð vita að mig vantar ýmislegt og það fellur ekki undir neitt sem kallast getur matarkyns. Annars er ég nú svo nýtin og góð húsmóðir að pabbi hans Emils í Kattholti yrði ansi lukkulegur ef hann ætti mig fyrir konu....jo vist...det tror jeg.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Svo Þórhallur ákvað að drífa í þessu ... gott hjá honum.

Nafnlaus sagði...

Svo Þórhallur ákvað að drífa í þessu ... gott hjá honum.