þriðjudagur, 8. janúar 2008

englar hoppa líka í pollum

Búið að vera strembið undanfarið, að byrja að vinna og í þokkabót veikindi á börnunum svo ég hef fengið minni svefn en ég hefði kosið :( Ísak byrjaði nýja árið á flensu og Auður fékk sýkingu í litlu tána og blóðeitrun í kjölfarið í gær. Táin var orðin frekar grunsamleg eftir leikskóla þannig að við fórum á bæjarvaktina . Mikið var þetta óþæginlegt gærkvöld og nótt, hún var þó orðin öllu skárri strax í gærkvöldi. Enduðum á að merkja við á fætinum á henni svo við gætum verið viss ef línan hækkaði eða lækkaði. Hún var eldspræk í dag með Siggu ömmu sinni sem var svo elskuleg að koma og sitja yfir skottunni. Ákvað svo að fara í heimsókn til ömmu sinnar og pakkaði vandlega ofan í skókassa nauðsynjum á borð við hárbursta, myndavélahulstri, flautu, meðalinu sínu og pottalepp :) Hún er farin að taka upp á því núna að lauma sér í okkar ból eftir að við höfum lesið og sungið fyrir hana. Í gærkvöldi stoppaði hún mig af í söngnum ,,þú ert búin núna, farðu fram" þegar ég kom svo að kíkja á hana var hún steinsofandi í mínu bóli, öll ljós kveikt og bækur á víð og dreif, hafði meira að segja fyrir því að drusla dúkkunni sinni með sér (úr rimlarúmi).
Ahh lenti í ansi kunnuglegum aðstæðum á sunnudaginn :) Ásdís, Ben og Freyja komu í heimsókn og eftir matinn fóru skotturnar inn að leika sér, heyrðum alveg í þeim og þær virtust skemmta sér hið besta. Ég ákvað svo að kíkja á þær og uppgötvaði þá að þær voru alls ekki inni í hebergi heldur inni á baði sem var lokað. Þegar ég kíkti inn sátu þær vinkonurnar uppi á vaskinum búnar að kreista megnið úr tannkremstúpunni og kremtúpu og skrúbbuðu borðplötuna með tannburstum (að sjálfsögðu) sem og spegilinn. Guð hvað þær voru stoltar af sér, við vorum að þrífa fyrir þig! sögðu þær MJÖG ánægðar með árangurinn. Það verður nú að viðurkennast að þær eru heldur penari í uppátækjunum en mæður þeirra, thank god! Tek til baka það sem ég sagði í jólaboði um daginn um eftirlit með börnum sem að sjálfsögðu snerti okkur mæðurnar. Skil nú að sum börn hafa einfaldlega ákveðnar þarfir...er þetta líka ekki bara þroskandi með eindæmum. Auður mín veit t.d. núna að það er betra að þrífa með tusku en tannbursta :)
Englabörn



Engin ummæli: