fimmtudagur, 3. janúar 2008

Litli anginn

Litli kúturinn okkar hann Aron Emil á eins árs afmæli í dag. Sú tilfinning sem ég upplifði þegar hann fæddist kom mér algjörlega í opna skjöldu, ekki fjarri þeirri tilfinningu að eignast mín eigin börn. Þegar ég gekk út af fæðingardeildinni var ég með tárin í augunum og gat ekki varist því að mér þætti ég vera að gleyma einhverju. Hann stendur mér afar nærri þessi litli angi þó við hittumst allt of sjaldan. Mig dreymdi fyrir fæðingu hans og bar það upp á foreldrana daginn sem þau komust að því að hans væri von. Ég hélt reyndar að hann yrði stelpa :)
Annars komið nýtt ár, árið sem ég verð 29 ára (það fyrsta sem ég spái í þegar ég hef náð mér eftir sprengingar). Lítur út fyrir að verða annasamt ár. Merkir áfangar hjá drengjunum okkar þetta árið, Ísak á stórafmæli í lok mars þegar hann nær fyrsta tugnum og Hafsteinn Einar fermist 6. apríl.

Mikið var erfitt að fara í vinnu í morgun, Auður þrætti og vill halda áfram í jólafríi ég mótmælti lítið og er afar þakklát fyrir að fara í helgarfrí svona fljótt. Fyrsti dagur í vinnu var skipulagsdagur og ég fór á held ég bara versta námskeið sem ég hef farið á.


Ég er að lesa þrettándu söguna núna og er alveg komin með hana á heilan, allur morguninn fór í að reyna að koma mér út úr henni. Allar hgusanir mínar eru í samræmi við orðaræðuna í bókinni...frekar fyndið þar sem ég stóð inn í þvottahúsi áðan við það að fara að setja í þvottavélina. Það þarf greinilega ekki að vera hversdagsleg athöfn að setja í þvottavélina :)

Engin ummæli: