mánudagur, 28. janúar 2008

úr einu í annað allt of seint um kvöld.....farin að sofa eftir smá

Vorum á kynningu hjá Ísak um heitt og kalt land í kvöld. Ósköp fínt hjá þeim í bekknum. Annars eins og flestir hafa orðið varir við er veðrið alltaf bara frekar leiðinlegt þessa dagana (misjafnlega þó) og ekkert útséð með það enn. Dreymdi ekki kindurnar mínar í haust heldur köngulóavef, sem ég vonaði í upphafi vetrar að væri fyrir slæmum vetri en ekki slæmu sálarstandi :) sýnist það alltaf vera að verða ljósara þó óneitanlega haldist þetta allt saman í hendur.
Ég er svo innilega þakklát fyrir hvað páskarnir eru snemma í ár. Maður getur svo sannarlega verið þakklátur fyrir trúna þegar maður er kennari, það er víst!
Heyrði mjög gott máltæki fyrir stuttu um vináttu sem hljóðar svona:
Vinátta er eins og að pissa á sjálfan sig, allir sjá það en maður einn finnur hlýjuna sem af því stafar.
..............................ekki amalegt!!
Hætti á þessum nótum,
býst við að flestir hafi prufað þetta amk. einu sinni um ævina og skilji því hvað við er átt.
Íris

Engin ummæli: