föstudagur, 29. febrúar 2008

29. febrúar

Helgarfrí, frábært. Get ekki beðið eftir því að fá að sofa lengur í fyrramálið. Get ekki farið snemma að sofa í kvöld því stóri krúttus er á balli (árshátíð) og ég á að sækja hann kl. 24:00. Þetta fylgir því víst að eiga unglingabörn, þurfa stundum að vaka fram yfir miðnætti. Verst auðvitað hvað maður verður alveg sérstaklega þreyttur þegar maður þarf að vaka (og hvað þá eftir krílunum sínum).
Ísak er meiddur á tá, ég fór með hann á slysó áðan, rifjuðum í leiðinni upp fyrri ferðir okkar þangað, sem eru orðnar þó nokkrar. Hann liggur nú uppi í sófa í mestu makindum, táin truflar ekkert þegar hann liggur.
Ykkur, sem eruð í eiginmannaleit, langar mig að benda á að kíka á bloggið hennar Elísabetar frænku (strengur hér til hliðar) hún gefur gott ráð sem aðeins virkar í dag. Það er annaðhvort að grípa gæsina....eða stegginn, nú eða eftir fjögur ár :)
Íris

miðvikudagur, 27. febrúar 2008

og það birtir til

Var að koma af fundi vegna kjarasamninga kennara, baráttuhugur í fólki. Hef fundið það undanfarið að fólk er orðið þreytt á þessu ástandi. Mikið um flótta úr stéttinni og þar af leiðandi aukið álag á þá sem eftir sitja. Nú er bara að bíða og sjá. Ef það væri ekki fyrir sumarfríið, jólafríið og páskafríið þá er ég ekki viss um að þetta starf væri svo eftirsóknarvert því þó vissulega sé það skemmtilegt og gefandi þá er það afar slítandi. Samstarfskona mín orðaði það ansi skemmtilega um daginn eins og að vera með bekkjarafmæli alla daga. Oft á tíðum er það nákvæmlega þannig og maður er heldur alls ekki laus þegar maður kemur heim á daginn og er endalaust að skipuleggja, finna námsefni, sinna foreldrum o.s.frv. og þú kemst ekki upp með annað því þú mætir að sjálfsögðu ekki inn í 25 barna hóp óundirbúin. Jæja þá er ég búin að skvetta úr kollinum.
Var í dag að undirbúa árshátíðina með bekknum mínum, hrikalega gaman. Svona vinna finnst mér æði, hefði helst viljað troða upp sjálf (nei, nei en nýt mín alveg í botn - frábærir krakkar líka sem hægt er að plata út í hvaða vitleysu sem er). Verðum með pínu ádeilu á auglýsingar :) náði meira að segja að pota inn skvettu af feminísku sjónarhorni.
Búið að fara í vitnisburði hjá drengjunum mínum....báðir á uppleið, já það er víst hægt þó þeir séu auðvitað BARA frábærir. Þórhallur fór með Ísak og ég með H.E. þar var aðalumræðuefnið hárið á drengnum.......sem var orðið að þráhyggju :) Það síðasta sem hann gerir áður en hann fer út úr húsi á morgnanna er að laga hárið, iðulega mæti ég honum þegar ég er að fara upp í stofu og þá er hann að koma út af klósetti af því hann var að laga á sér hárið. Hann getur varla leikið sér og hímir undir skýli þegar hann fer út (hárið má ekki blotna) svo var hann farinn að fara ansi oft út úr tíma til þess að laga hárið. Við vorum nú reyndar búin að ræða þetta hérna heima áður því fólk var farið að tala um þetta við mig í skólanum :) Laufey kennarinn hans skoraði á hann þegar hann þurfti að fara á klósettið að líta ekki í spegilinn...........hann stóðst ekki freistinguna. En hann er svo sætur þessi strákur (eins og mamma sín) að hver getur láð honum að vilja horfa á sig :) jæja hann er þó allavega farinn að taka á þessu núna enda komumst við að þeirri niðurstöðu að það væri varla svo mikill blástur inni í stofunni hjá honum að hárið ætti að fara eitthvað úr skorðum. Hann klínir annars svo miklu í hárið á sér að það er orðið eins og á barbídúkkum sem hafa farið of oft í bað. Ekki kræsilegt.
Ísak er á fullu að æfa fyrir árshátíð, þau verða með Ávaxtakörfuna. Hann verður einn þriggja sögumanna. Hann er frábær og svo mikill sögumaður í sér, við erum búin að æfa mikið og hann er svo viljugur að taka við öllum ábendingum og skilur svo vel hvernig hann á að bæta sig. Gefa öllum orðum gildi, fara í sögustellingu, opna munninn betur. Frábær, enda er hann sá eini sem kann sína rullu utanbókar.
................................og það snjóaði í gær og það snjóar í dag en það eru víst gamlar fréttir.
Íris

þriðjudagur, 26. febrúar 2008

Afrek dagsins

Kláraði næstum foreldraviðtölin, á eitt eftir sem verður tekið seinna.

mánudagur, 25. febrúar 2008

Alltaf að birta til

Auður mín fékk sér krem í hárið í gær....og mikið af því. Varð þó til þess að hún kann nú að láta skola sápu úr hárinu án þess að fá sápu í augun!!! Ég varð að setja slatta af fléttum í hana þar sem kremið fór ekki úr í fyrsta, öðrum og þriðja þvætti. Verðum að fara í bað aftur í kvöld og athuga hvort skrudda losni ekki við restina af kreminu :)
Ferðin í bústaðin var afar afslappandi, mikið um pottaferðir. Fengum frábært veður, reyndar kalt en algjör stilla. Voða gott að vera svona saman fjölskyldan, mikið spjallað. Ásdís, Benjamin og Freyja komu svo á laugardagskvöldinu og voru yfir nótt....við skvísurnar erum að verða ósigrandi í Trivial. Bara gaman þ.e. að vinna karlana :)
Styttist í páska!!!!
Íris

fimmtudagur, 21. febrúar 2008

Á eftir vetri kemur vor

Rákumst á heldur skemmtilega síðu sem vinkona okkar hún Hlédís heldur úti og heitir Kindur.is Á þessari síðu er hægt að kaupa kindur eða fóstra. Hvet ykkur til að kíkja á síðuna. Hún býður fólki að kaupa kind (sem hún svo sér um að ala upp í sveitasælunni á Snæfellsnesi) maður fær að sjálfsögðu að velja nafn á kindina sína og, já takið eftir, heimsækja hana 6 sinnum á ári. Fyrir utan að maður fær sent jólakort þar sem helstu atburðir í lífi kindarinnar eru tilgeindir....ávöxtum kindarinnar fær maður líka að njóta hvort sem er á jólunum, sunnunagsmatnum eða hvenær sem mann lystir. Æ þetta minnir mig nú á sögu sem ég heyrði sem gerðist í sláturhúsinu í Borgarnesi. Þannig var að gangurinn sem kindurnar þurftu að ferðast um sín hinstu skref var eitthvað óhentugur og hafði einhver orð á því við manninn sem sá um þann þátt í ferðalaginu. Svarið sem hann gaf var ,,þær venjast þessu". :)
Ætlum að fara í sumarbústað um helgina, upp í Húsafell. Það verður gott að skipta um umhverfi, Þórhallur verður þá líka í fríi. Allir mjög spenntir!
Mamma og pabbi eru líklegast að fara vestur á morgun, Ísak var ekki sáttur, sofnaði tuðandi og vaknaði tuðandi. Hann er þó öllu sáttari eftir að hann frétti af sumarbústaðnum. Hann er svo mikill sveitakarl þessi elska. Annars öfunda ég þau, væri alveg til í að fara vestur en það verður að bíða betri tíma. Hef satt að segja ekki mikla löngun til að keyra vestur né fara í Baldur. Þó óneitanlega sé munur að fara í nýja bátinn er hann hrikalega illa skipulagður fyrir barnafólk þ.e.a.s. ef maður vill af einhverjum furðulegum ástæðum slaka á. Mjög góð líkamsrækt auðvitað svo ekki sé talað um tækifærin til að temja börnum sínum (Auði) góða og gilda siði og grobba sig af því hvað maður er afskaplega fær uppalandi.
Errið (R) hjá Auði er orðið ansi sterkt, mjög flott hjá henni en svo var hún nefnilega líka að læra Þorraþrælinn........yndislegt!
Stóri krúttlingur kominn heim, búinn að unglingast úti, minni og minnst bæði sofnuð og elskulegur að vinna í Borgarnesi í húsinu hjá Þorvarði og Elvu.
Ótúlegt hvað þessi sólarglæta í dag gerði manni gott, allir urðu svo glaðir....minnir mann á að vorið kemur að lokum. Ég held það eigi ekki eftir að skipta nokkru hvernig vor við fáum í ár (í verri eða betri kantinum) allt verður léttir úr þessu held ég bara. Ég er væmin í dag, það er stutt í þakklætið. Hlakka til vorsins...
Íris

þriðjudagur, 19. febrúar 2008

Ekkert hangs hér!

Hvað er með þetta veður, ég sem var svo himinlifandi með alla þessa rigningu (og örugglega allir aðrir sem þurfa að keyra á 20 á eftir mér). Ísak minn er loksins kominn á penisilín, hann er búinn að vera slappur í 2 vikur og varla skólahæfur. Lyfjakostnaðurinn fyrir þennan mánuð er orðinn ansi hár, örugglega hátt í 20.000. Nú krosslegg ég fingur og vona að okkar veikindadögum sé lokið í bili.
Þórhallur hefur verið á kafi í aukavinnu undanfarið, sefur þess á milli. Ég hef verið að undirbúa vitnisburðarviðtöl sem eru þessa viku og fram í þá næstu. Hellings vinna, hef orðið lítið úthald í að sitja og lærdómsvöðvabólgan farin að segja til sín.
Sigga og Kristján eru nú á leið til Balí það verður örugglega bara bögg...æ ætli þau megi nú ekki kíkja aðeins í sól og sumaryl það er ekki eins og þau komist mikið lengra í hitann á sumrin nema þegar þau stumra yfir kakópottinum :), greyin!
Aðeins farinn að koma skjálfti í okkur yfir fermingunni, þurfum að fara að senda út boðskort og svona aðeins að skipuleggja. Kíkja á salinn og svona. Ætlum nú samt að taka þessu með stóískri ró en verðum samt að passa okkur að tapa okkur ekki í rólegheitum......það eru nefnilega rétt að koma páskar og þá er nú bara allt að bresta á.
Jæja er farin að hlakka til helgarinnar, var viss um að ég mætti sofa út í morgun, fattaði svo að það var bara ÞRIÐJUDAGUR! Hrikalega spræk samt, pínu rám eftir að hafa talað látlaust í allan dag.....og gærdag.....
Íris (Þórhallur minn er sofandi)

föstudagur, 8. febrúar 2008

8. febrúar

Jæja nú er veðrið farið að taka svolítið í og ósköpin eiga að bresta á upp úr kaffi. Já þá er nú gott að liggja heima í hlýjunni. Ég og Auður erum heima með Ísak sem er allur að koma til. Ætlum að hafa það notalegt í kvöld horfa á Simsons og borða ís og nammi meðan karlmennirnir af stærri gerðinni fara út á lífið. Þórhallur er á leiðinni á karlakvöld hjá ÍA, Hafsteinn á ball í Grundaskóla sem ég hef þó sterkan grun um að verði aflýst....jæja ég vona það. Er ekki í miklu stuði fyrir skutlerí, ekki miðað við fyrri plön :)
Það eru mýs í bílskúrnum. Þórhallur hefur það fengið það hlutverk að leysa vandamálið....ógeð!

fimmtudagur, 7. febrúar 2008

Veðrið, mæli með: http://www.yr.no/

Veðrið er búið að vera vægast sagt heimilislegt undanfarið. Rumskaði snemma í morgun við lágvært bíp alltaf öðruhvoru....hélt að Þórhallur væri búinn að breyta hjá sér hringitóninum og í ofanálag gleymt að afstilla vekjarann því hann var heima með Ísak í dag. Var orðin svolítið pirruð því þetta truflaði hjá mér svefninn og ég meira að segja gat leyft mér að sofa aðeins lengur því færri börnum var að koma af stað. Þegar ég fór svo loks fram sá ég að þetta var grafa sem var búin að vera á sveimi á Garðabrautinni að moka snjó, sem sagt allt á kafi á Akranesi. Trén mín í garðinum að sligast undan þunganum af snjónum. Ég bjóst við að börnin í bekknum mínum yrðu alveg í rusli yfir því hversu djúpt þau sukku í snjóinn á leiðinni í skólann, en ekki orð um það. Enda hafa þau án efa hugsað mér sér eftir síðustu snjókomu að það þýddi lítið að tala um svoleiðis við mig. Ég er auðvitað búin að segja þeim hrikalegar tröllasögur af Vestfjörðum þar sem við nánast þurftum að grafa göng til þess að komast í skólann, jah eða ganga á húsþökum :)
Fyrir veðurþyrsta er upplagt að fara á norska veðursíðu sem bóndakona hér í Innri-Akraneshreppi benti mér á, hún segist slá bæjarheitinu inn og fái þá fullkomna veðurspá fyrir næstu daga, akkúrat á sínum bletti. Ég nota þessa veðursíðu reglulega og líkar vel, mjög flott síða og alls ekkert mál að lesa norskuna :) Það er reyndar ekki hægt að fá Seftjörn upp en Brjánslækur kemur upp, hvort sem er ekki svo mikill munur á veðri sitt hvoru megin við veginn :) Ennnnn hér er slóðin að þessari frábæru síðu http://www.yr.no íslenskir stafir virka.
Veðrið á Akransesi næstu daga - skítaveður
Veðrið á Brjánslæk næstu daga
Guð þið hljótið að halda að ég sé eitthvað rugluð.........hef bara ekkert annað að gera, eða bara að slæpast, nenni bara ekki að elda mat, laga til né vinna :) Hvernig var þetta aftur illu er best af lokið, á morgun segir sá lati. Þýðir ekki að hangsa er farin í allt ofangreint!

þriðjudagur, 5. febrúar 2008

Ja-há!

Já bara ef þið eigið í vandræðum með það í hverju þið eigið að vera í á Öskudaginn :) Hentar kannski ekki íslensku veðurfari en erum við ekki hörkutól upp til hópa hvort sem er???
Ísak minn er veikur sem er gríðarlegt áfall þar sem þessi merki dagur er á morgun. Við því er svo sem ekkert að gera nema færa kútnum nammi upp í sófa gegn fögrum söng. Ég hef ekki trú á að stóri kútur fari að syngja fyrir búðareigendur þetta árið, heyrðist hann hafa tekið þá ákvörðun um daginn. Auður mín fer á ball í leikskólanum í tilefni dagsins, náttfataball. Henni finnst voða gaman á böllum, ekki ólík mömmu sinni að því leyti :) Frí hjá strákunum í skólanum en skipulagsdagur hjá mér, skemmtilegir þessir skipulagsdagar og mér sýnist svei mér þá á dagskránni að hann eigi eftir að slá síðasta skipulagsdegi við, hann var reyndar algjört flopp...förum ekki nánar út í það nema að ég sat á versta fyrirlestri sem um getur í 7 klukkutíma.
Nú liggja litlu systkinin uppi í rúmi og Ísak er að leggja Auði lífsreglurnar ,,Liverpool vúhú" Hafsteinn kennir henni aftur á móti að Mancester séu bestir svo hún er frekar rugluð í því með hvaða liði hún á að halda :) Hún er samt ótrúlega flink við að gleðja þá og man alveg með hvoru liðinu hún á að halda þegar hún hittir þá. Svo er Hafsteinn bestur og Ísak er snillingur!!! Vill til að hún er ótrúlega minnug stelpan.