mánudagur, 25. febrúar 2008

Alltaf að birta til

Auður mín fékk sér krem í hárið í gær....og mikið af því. Varð þó til þess að hún kann nú að láta skola sápu úr hárinu án þess að fá sápu í augun!!! Ég varð að setja slatta af fléttum í hana þar sem kremið fór ekki úr í fyrsta, öðrum og þriðja þvætti. Verðum að fara í bað aftur í kvöld og athuga hvort skrudda losni ekki við restina af kreminu :)
Ferðin í bústaðin var afar afslappandi, mikið um pottaferðir. Fengum frábært veður, reyndar kalt en algjör stilla. Voða gott að vera svona saman fjölskyldan, mikið spjallað. Ásdís, Benjamin og Freyja komu svo á laugardagskvöldinu og voru yfir nótt....við skvísurnar erum að verða ósigrandi í Trivial. Bara gaman þ.e. að vinna karlana :)
Styttist í páska!!!!
Íris

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku Íris.
Gott að heyra frá þér og að það var gaman í bústaðnum - ég vona að Ísak hafi skemmt sér vel. Það fer a ðstyttast í vesturferð hjá honum með okkur.
Það var frábært að kíkja um helgina og sjá svolítið út fyrir hversdaginn í vinnunni.´
Heyri fljótlega í þér.
mamma