Já bara ef þið eigið í vandræðum með það í hverju þið eigið að vera í á Öskudaginn :) Hentar kannski ekki íslensku veðurfari en erum við ekki hörkutól upp til hópa hvort sem er???Ísak minn er veikur sem er gríðarlegt áfall þar sem þessi merki dagur er á morgun. Við því er svo sem ekkert að gera nema færa kútnum nammi upp í sófa gegn fögrum söng. Ég hef ekki trú á að stóri kútur fari að syngja fyrir búðareigendur þetta árið, heyrðist hann hafa tekið þá ákvörðun um daginn. Auður mín fer á ball í leikskólanum í tilefni dagsins, náttfataball. Henni finnst voða gaman á böllum, ekki ólík mömmu sinni að því leyti :) Frí hjá strákunum í skólanum en skipulagsdagur hjá mér, skemmtilegir þessir skipulagsdagar og mér sýnist svei mér þá á dagskránni að hann eigi eftir að slá síðasta skipulagsdegi við, hann var reyndar algjört flopp...förum ekki nánar út í það nema að ég sat á versta fyrirlestri sem um getur í 7 klukkutíma.
Nú liggja litlu systkinin uppi í rúmi og Ísak er að leggja Auði lífsreglurnar ,,Liverpool vúhú" Hafsteinn kennir henni aftur á móti að Mancester séu bestir svo hún er frekar rugluð í því með hvaða liði hún á að halda :) Hún er samt ótrúlega flink við að gleðja þá og man alveg með hvoru liðinu hún á að halda þegar hún hittir þá. Svo er Hafsteinn bestur og Ísak er snillingur!!! Vill til að hún er ótrúlega minnug stelpan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli