miðvikudagur, 27. febrúar 2008

og það birtir til

Var að koma af fundi vegna kjarasamninga kennara, baráttuhugur í fólki. Hef fundið það undanfarið að fólk er orðið þreytt á þessu ástandi. Mikið um flótta úr stéttinni og þar af leiðandi aukið álag á þá sem eftir sitja. Nú er bara að bíða og sjá. Ef það væri ekki fyrir sumarfríið, jólafríið og páskafríið þá er ég ekki viss um að þetta starf væri svo eftirsóknarvert því þó vissulega sé það skemmtilegt og gefandi þá er það afar slítandi. Samstarfskona mín orðaði það ansi skemmtilega um daginn eins og að vera með bekkjarafmæli alla daga. Oft á tíðum er það nákvæmlega þannig og maður er heldur alls ekki laus þegar maður kemur heim á daginn og er endalaust að skipuleggja, finna námsefni, sinna foreldrum o.s.frv. og þú kemst ekki upp með annað því þú mætir að sjálfsögðu ekki inn í 25 barna hóp óundirbúin. Jæja þá er ég búin að skvetta úr kollinum.
Var í dag að undirbúa árshátíðina með bekknum mínum, hrikalega gaman. Svona vinna finnst mér æði, hefði helst viljað troða upp sjálf (nei, nei en nýt mín alveg í botn - frábærir krakkar líka sem hægt er að plata út í hvaða vitleysu sem er). Verðum með pínu ádeilu á auglýsingar :) náði meira að segja að pota inn skvettu af feminísku sjónarhorni.
Búið að fara í vitnisburði hjá drengjunum mínum....báðir á uppleið, já það er víst hægt þó þeir séu auðvitað BARA frábærir. Þórhallur fór með Ísak og ég með H.E. þar var aðalumræðuefnið hárið á drengnum.......sem var orðið að þráhyggju :) Það síðasta sem hann gerir áður en hann fer út úr húsi á morgnanna er að laga hárið, iðulega mæti ég honum þegar ég er að fara upp í stofu og þá er hann að koma út af klósetti af því hann var að laga á sér hárið. Hann getur varla leikið sér og hímir undir skýli þegar hann fer út (hárið má ekki blotna) svo var hann farinn að fara ansi oft út úr tíma til þess að laga hárið. Við vorum nú reyndar búin að ræða þetta hérna heima áður því fólk var farið að tala um þetta við mig í skólanum :) Laufey kennarinn hans skoraði á hann þegar hann þurfti að fara á klósettið að líta ekki í spegilinn...........hann stóðst ekki freistinguna. En hann er svo sætur þessi strákur (eins og mamma sín) að hver getur láð honum að vilja horfa á sig :) jæja hann er þó allavega farinn að taka á þessu núna enda komumst við að þeirri niðurstöðu að það væri varla svo mikill blástur inni í stofunni hjá honum að hárið ætti að fara eitthvað úr skorðum. Hann klínir annars svo miklu í hárið á sér að það er orðið eins og á barbídúkkum sem hafa farið of oft í bað. Ekki kræsilegt.
Ísak er á fullu að æfa fyrir árshátíð, þau verða með Ávaxtakörfuna. Hann verður einn þriggja sögumanna. Hann er frábær og svo mikill sögumaður í sér, við erum búin að æfa mikið og hann er svo viljugur að taka við öllum ábendingum og skilur svo vel hvernig hann á að bæta sig. Gefa öllum orðum gildi, fara í sögustellingu, opna munninn betur. Frábær, enda er hann sá eini sem kann sína rullu utanbókar.
................................og það snjóaði í gær og það snjóar í dag en það eru víst gamlar fréttir.
Íris

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Halló elskurnar mínar!
Takk fyrir yndislega sumarbústaðaferð um síðustu helgi. Baráttukveðjur til ykkar allra.
Knús og kossar,
Ásdís

Nafnlaus sagði...

Já, hann Hafsteinn Einar er sætur strákur það er engum blöðum það að fletta.
Amma í Borgarnesi