Jæja páskarnir búnir. Stórgott frí og langþráð. Vorum nánast barnlaus um páskana eða bara með einkadótturina sem kunni sínu hlutskipti afar vel þó hún fagnaði bræðrum sínum vel þegar hún hitti þá loks. Hún er enn nokkuð ánægð með þá og var t.a.m. ólm í að kyssa þá góða nótt í kvöld sem hún er venjulega afar óhress með. Vill yfirleitt bara kyssa annan þeirra þá oftast Hafstein Einar því Ísak verður afar sár ef hann fær ekki koss (enda kúrari með eindæmum) örlar aðeins á kvikindisskap hjá dömunni.
Styttist óðum í fermingu, spennan magnast jafnt og þétt. Vorið nálgast sömuleiðis það er nú eins og maður sé aðeins farin að fá sýnishorn af því, þrátt fyrir að það hafi gert örlítið hret þá er öllu hlýrra.
Íris
Engin ummæli:
Skrifa ummæli