Ég og fermingardrengurinn erum á leiðinni á kransakökugerðarnámskeið. Varð reyndar agalegur ruglingur sem í raun er kannski ekki svo furðulegt þar sem ég er gleymin með eindæmum. Jæja skammtímaminnið er í lamasessi ekki langtímaminnið. Þannig var að fyrir löngu síðan skráði ég okkur mæðginin á námskeið þriðjudaginn 4. mars það mundi ég vel. Í síðustu viku kom heimilisfræðikennarinn aftur á móti til mín og spurði hvort ég gæti ekki komið kl. 17:00 í staðin fyrir kl. 19:00 ég rak þá augun í það að ég var skráð 5. mars en ekki 4. mars. Ég reyndi aðeins að þræta en fyrir þær sakir að minni mitt getur verið gloppótt (eins og áður sagði) þá þorði ég ekki mikið að mótmæla. Ég sem er komin með góða reynslu af minnisleysi ákvað því að skrá herlegheitin inn í símann minn sem nú hefur tekið við störfum skammtímaminnisins. Ég var búin að panta pössun fyrir litlu skruddu en vissi að ég þyrfti að taka hana með mér í smá stund þar sem barnapían mín, Þórhallur, vinnur amk. til kl sex. Jæja síminn minnti mig staðfastlega á þetta í dag og ég fór í hendingskasti með Auði í búðir til að redda því sem redda þurfti (barnið hrikalega til fara, allt hafði blotnað í leikskólanum svo hún var í einhverjum afgöngum) kl. 17:10 er ég loks komin upp í skóla.......allt harðlæst svo ég hringi í mömmu vinar hans Hafsteins í milljónasta skipti í dag og fékk staðfestan tímann (19:00 ekki FIMM) svo ég hringdi í heimilisfræðikennarann sem aumkaði sig yfir mig og leyfði mér að koma í kvöld (þar sem barnapían mín var þegar komin á Kjalarnesið og gat ekki passað fyrir mig á morgun). Jæja þið haldið kannski að nú sé mig að misminna með langtíma- og skammtímaminnið og þau séu hvorugt í funksjon. Aha en ég ákvað að sætta mig ekki við þá staðreynd svo ég tékkaði á póstinum mínum og viti menn langtímaminnið í lagi 4. mars var það en það er spurning með heimilisfræðikennarann, það er spurning hvort hún þurfi ekki að láta tjekka sig af????
þriðjudagur, 4. mars 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli