mánudagur, 28. apríl 2008

Fyrstu vísur Auðar....

Auður samdi fyrstu vísuna sína í kvöld.

Krummi kallar á börnin sín
bíddu, bíddu, bíddu hér
ertu kanski að stríða mér
ertu kannski að bulla hér

Er hún ekki flink þessi elska :O) Svo hélt hún auðvitað áfram, komin í stuð og svona og samdi aðra vísu, hún er heldur klúrari sú.

Kúki, kúki krummi hér
kúkar bara á gólfið hér
mýsnar kúka á gólfið hér
bubbi, bubbi, bubbi

Ég gat nú ekki annað en brosað þegar seinni vísan var samin....og hugsaði já hún er svo sannarlega dóttir föður síns... Ég vona þó að klúrari verði vísurnar ekki hjá henni.

fimmtudagur, 17. apríl 2008

Dvergadónaskapur

Erum að ná okkur eftir miklar annir :)

Jæja Hafsteinn Einar fermdur, fermdist 6. apríl. Hann var afar ánægður með daginn eins og við sem stöndum að honum. Þökkum kærlega fyrir drenginn sem er vægast sagt í skýjunum. Hann fékk fullt af fallegum gjöfum og nýtilegum. Við vorum mjög ánægð með hvernig veislan tókst til. Ofsalega gaman að hitta allt þetta fólk, allir svo afslappaðir og yndislegir. Þegar maður á svona marga góða að er lítið mál að halda veislu :) Nútímafjölskyldur eru því vel staddar þegar kemur að því að halda veislur :) Athöfnin kom mér mjög á óvart (ekki að ég hafi búist við langdreginni, leiðinlegri athöfn) en hún var alveg stórskemmtileg. Skemmtileg lög spiluð þegar fermingarbörnin og aðstandendur komu upp að altarinu og feikna sveifla þegar fermingarbörnin gengu út. Mikið líf sem sagt.
Krakkarnir eru öll hress og kát. Þórhallur líka. Og ég. Sumardagurinn fyrsti í næstu viku...tíminn flýgur áfram. Við fórum á Skilaboðaskjóðuna á sunnudaginn var. Ágætis sýning....ég sem er mikill aðdáandi bókarinnar varð þó fyrir örlitlum vonbrigðum með sumar stefnur sem teknar höfðu verið. T.a.m. olli Maddamamma mér örlitlum vonbrigðum. Í bókinni er hún hin fullkomna mamma en í leikritinu verður hún pínu snúðug, ekki alveg eins mömmuleg, ekkert Pollýönnu neitt. Ég var fyrir miklum vonbrigðum með að höfundar leikritsins ákváðu að henda inn kynferðislegri spennu og það á milli Dreitils og Möddumömmu (ekki það að aðrar persónur hefðu verið betri kandídatar) Dreitill (dvergurinn) reynir svolítið við Möddumömmu greyið, ekki von að hún hafi verið svolítið snúðug!!! En aftur auðveld leið til að fanga athygli foreldranna og fá þá með í leikritið....kynferðisleg spenna virkar greinilega á hvaða vígstöðum sem er (dverga-hvað! Klikkar aldrei)
Alveg að detta í föstudag. Þórhallur er að fara í bústað með vinum sínum um helgina ég verð hér heima og held uppi aga og fylli svanga maga. (Takið eftir ríminu)
Ohh Ísak var svo fyndinn í morgun. Hafsteinn smellti í hann D:fi (hárkremi) og ætlaði að gera hann gæjalegan fyrir skólann, Ísak gafst fljótlega upp á fingrafimi stóra bróðurs sem þó hefur töluverða reynslu af hárgræingum. Ekkert hægt að tjónka við þenna lubba var svarið við vælinu og H.E. taldi hárið á Ísak bara frekar skítugt (ekki það að hann baði sig ekki og HE er pottþétt flinkastur í háreríi) en Hafsteinn sagðist finna hárlyktina af honum á höndunum á sér. Ég benti Ísak á að þetta væri kannski ábending um að hann færi í bað eftir skóla og skipti um nærbuxur og svona í leiðinni. Þá sagði Ísak þessa fleygu setningu: Öhh ég er sko löngu búinn að því. Jæja þetta var þó alveg til þess að koma breiðu brosi á mannskapinn :)
Veðurstofan spáir blíðu um helgina, hefði viðjað hafa rigningu og rok.....vídeó og rólegheit, svona í ljósi þess að egtemannen verður vant við látinn við skemmtanahöld í öðru sveitarfélagi. Horfir því án efa í trampólín og vorverk í garðinum. Er að vona að fólk sýni mér þá gæsku að heimsækja mig um helgina til að stytta mér stundir.....möguleg umræðuefni gætu t.a.m. verið kynferðisleg spenna í Skilaboðaskjóðunni, ástir og átök dverga og svo gæti auðvitað verið gaman að velta því upp hvaða viðhorf Maddamamma hefur til dverga. Man það þó nú að það sama er upp á tengingnum í myndinni um Mjallhvíti, dvergarnir voru alveg sjúkir í að fá að kyssa hana...meira að segja þessi krumpaði lét til leiðast til að fá ástúðlegan koss prinsessunnar og aðrir laumuðu sér aftur í röðina. Ahh komið enn eitt mögulegt umræðuefni. Atferli dverga í barnasýningum! Vægast sagt spennandi helgi fram undan svo fremi sem einhver komi í heimsókn, gæti orðið vandræðalegt umræðuefni við börnin.
Ég er augljóslega orðin allt of þreytt til að skrifa meira, farin að sofa!!!