Ég er á algjörum yfirsnúningi...þarf að tala rosalega mikið en er búin með þann skammt sem hann Þórhallur minn þolir (hann fór í sturtu - örugglega til þess að kæla sig) Málið er að ég er bara frekar svekkt...var á fundi í dag þar sem fjallað var um eingreiðslur frá bæjarstjórninni til okkar, kennara. Upphæðin sem var skammarlega lág var samþykkt og enginn baráttuhugur lengur í kennurum. (ein helsta ástæðan fyrir því að ég varð kennari...hélt þeir væru svo baráttuglaðir - svekkelsi) Við höfum undanfarið verið í forfalla banni (tökum ekki að okkur forföll séum við í undirbúningi á þannig tíma - fáir reyndar í þeirri aðstöðu þar sem flestir eru pakkaðir í vinnu vegna manneklu) til þess að sýna hversu mikið álag hefur verið undanfarinn vetur því ekki virtist vera skilningur á því hjá bæjarstjórninni fyrr en forfallabannið tók gildi. Einn úr skólanefndinni taldi þó að kennarar á Akranesi gætu bara farið með strætó í bæinn vildu þeir fá betri kjör......já svona hefur viðmótið verið hjá bæjarstjórninni, að láta svona út úr sér. Jæja ég er sem sagt fúl yfir þessu, hefði viljað halda þessu áfram út skólaárið og byrja það næsta á sama hátt...þannig held ég að við hefðum fengið summu sem var nær okkar væntingum.
Annars er velþeginn föstudagur á morgun og í þokkabót þriggja daga helgi....yndislegt.
æ ég bara nenni alls ekki að skrifa meira enda orðin silkislök eftir allan æsinginn yfir bæjarstjórninni, en er það nema von að þau láti svona....frjálslyndir og sjálfstæðismenn!!