mánudagur, 30. júní 2008


Skagamenn, Skagamenn skoruðu mörkin.....

Ísak var á Shellmóti í Eyjum, Þórhallur fór með hann. Drengurinn spilaði með tveimur liðum C og B. C liðið lenti í 4 sæti og B liðið í öðru sæti. Hann lét svo sannarlega ljós sitt skína og skoraði hvorki meira né minna en 15 mörk. Hann fékk líka að reyna sig í marki og fékk aðeins eitt mark á sig. Hörku leikmaður hann Ísak. Þeir feðgar voru svo aðeins lengur í Eyjum en liðið og fóru með seinni ferð heim. Þeir notuðu tímann til að fara í fljallgöngu og spranga og þess háttar.


Þeir fóru í fjallgöngu feðgarnir og skemmtu sér hið besta. Fóru erfiðu leiðina upp og auðveldari niður. Góð æfing fyrir gönguna sem Ísak fer í með ömmu og afa í Borgarnesi. Stefnum á að fara á Esjuna í vikunni. Hafsteinn Einar var líka að keppa í dag, leikurinn í dag fór heldur verr en sá í síðustu viku svo illa að við ræðum það ekki nánar hér :o) Þeir voru þó glaðir á heimleiðinni en ljóst að ýmsu var ábátavant utan þess hversu blikarnir stóðu sig vel. Fólki fannst það merki um mikinn pirring í liðinu þegar Hafsteinn var farinn að bölva inni á vellinum. Þeir eru þó enn í 5 sæti á Íslandsmótinu en markahlutfallið heldur betur beðið hnekki eftir átök dagsins. Það verður heldur betur tekið á því í næstu viku :o)
Skrudda litla fékk að koma með til RVK en fór í heimsókn til Freyju frænku sinnar, Ásdísar og Ben. Hún var mjög ánægð með þá ákvörðun og vildi helst gista. Hún kom síðan heim með tvo fulla poka af fötum sem hún hefur mátað mikið í kvöld :o)

fimmtudagur, 19. júní 2008

Síðustu dagar í máli og myndum.......
Litla skott á leikskólanum sínum
,,myndabrosið"
Ef maður er ekki yndisleg!
Auður á 17. júní á Byggðarsafninu.

Hetja á hestbaki.

Hún hefur afrekað mikið í sumar. Klappað hundi og ketti og svo auðvitað farið á hestbak. Hún er líka fluguóð og stendur í gjarnan björgunarstörfum reyndar er undirliggjandi markmið hjá henni að drepa flugurnar. Hún vill meina (og við rökræddum þetta) að það verði að drepa flugur því annars fari þær í hárið á manni og setji lirfur í buffið hjá manni. Skil samt ekki hvað hún meinar með því, því hún hún fer í leiðangra til að finna lirfur og orma. Held mér hafi þó tekist að snúa þessu við á dögunum :o)

Auður litla skinnið týndist á 17. júní. Við vorum að horfa á ávaxtakörfuna og uppgötvuðum allt í einu að barnið, sem átti að standa fremst við sviðið, var horfið. Við tók heljarinnar leit og allir krókar kannaðir. Þegar ekkert gekk hringdi pabbinn í Pétur bróður sinn til að koma að hjálpa. Pétur sem hafði skroppið heim í pissupásu með börnin sín hringdi þó fljótlega og var þá krulla litla fundin. Hún hafði þá ákveðið fyrst hún fann engan að fara bara heim. Hún vill þó meina að kona hafi komið henni til hjálpar, þessi kona var þó hvergi nærri þegar krulla skilaði sér heim og er þetta allt mjög dularfullt. Henni var svolítið brugðið en grét ekki fyrr en hún hitti foreldra sína en sagði þegar hún kom inn úr dyrunum og hitti Pétur ,,þið gleymduð mér." Hún verður vonandi varkárari héðan af en hún hefur verið að fikra sig aðeins áfram í að fara eigin leiðir í fjölmenni.

Ísak okkar kemur heim í dag, við förum á eftir mæðgurnar í Borgarnes og sækjum kappann. Hann er þó ekkert endilega á því að koma heim og vill helst vera hjá ömmu og afa á Seftjörn. Ég skil hann svo sem ósköp vel. Hann er svo að fara til Vestmannaeyja í næstu viku að keppa í fótbolta.

Hafsteinn Einar var að lyfta og er farin í klippingu. Það er frí á æfingum fram á þriðjudag og bara vika eftir af vinnuskólanum.

Kvennadagurinn í dag, einn af mínum uppáhalds dögum.

Áfram stelpur!

föstudagur, 13. júní 2008

Þvílík blíða búin að vera síðustu daga....arfinn í garðinum hefur náð nýjum hæðum. Ég fór út í garð og krafsaði aðeins í honum en sýnist ég þurfa aðeins meiri viðbúnað áður en ég held áfram. Það þarf líka að mála húsið og ég get ómögulega verið að reyta arfa þegar það er ógert, ekki það þó að ég hafi farið í að mála húsið í blíðunni. Ég afrekaði þó að koma þvottinum í þolanlegt horf! Ísak minn er hjá ömmu og afa á Seftjörn og unir sér vel, hann hringdi í mig í gær og sagðist ekki koma fyrr en á mánudag en planið var að hann kæmi heim í dag með pabba. Hafsteinn Einar er vinnandi maður og fékk sökum dugnaðs að slá í 3 mínútur (að eigin sögn). Auður elskar bróður sinn mikið þegar hann er fjarverandi :o) fjarlægðin gerir fjöllin blá. Hún var í þriggja og hálfsárs skoðun í vikunni, sem hún að sjálfsögðu rúllaði upp. Þórhall minn vantar nýtt grill...býst við að hann fái það á morgun, veitir víst ekki af þar sem okkar er að liðast í sundur og það þarf nokkra tækni við að koma því í gagnið. Það er því sjaldan grillað hér nema húsbóndinn sé heima.

þriðjudagur, 10. júní 2008

Þessa verð ég bara að eignast.... Fann þessa frétt á mbl.is
Það er ekki amalegt að vera kona á 21. öldinni :o)

Þvottavél sem þarf ekki vatn

Tilraunir standa nú yfir í Bretlandi með þvottavél sem notar lítið sem ekkert vatn, og er vonast til að hún komi á almennan markað á næsta ári. Fyrirtækið sem stofnað hefur verið um þróun og markaðssetningu vélarinnar segir að hún mun einungis þurfa tæplega tvö prósent af þeirri orku og vatnsmagni sem hefðbundnar þvottavélar þurfi.
Plastflögur eru notaðar til að fjarlægja óhreinindi og bletti úr fötum, og eru þau því þurr eftir þvottinn. Leiðir það til mikils orkusparnaðar þar sem ekki er þörf á að nota þurrkara.
Fyrirtækið Xeros var stofnað út frá Háskólanum í Leeds til að markaðssetja þessa nýju tækni. Segir það að ekki sé reiknað með að þvottavélar af þessu tagi verði mjög ólíkar hefðbundnum vélum.
Þvottavélanotkun hefur vaxið um 23% í Bretlandi undanfarin 15 ár. Heimili þar í landi nota að meðaltali 21 lítra af vatni á dag til að þvo föt, sem eru um 13% vatnsnotkunar breskra heimila.
Venjuleg þvottavél notar um 35 kíló af vatni til að þvo hvert kíló af fötum.

þriðjudagur, 3. júní 2008

Búið að slíta skólanum, vinnudagar þessa viku og svo sumarfrí. Veðrið yndislegt í dag hrikalegt að þurfa að eyða honum inni í blíðunni....ég var rennandi sveitt að reyna að pakka niður dótinu eftir veturinn. Það passaði svo fínt að þegar ég var búin í vinnunni var sólin farin :) Jæja en við hjónin skelltum okkur vestur á firði um helgina á sjómannadagsfagnað. Það var bekkjamót hjá mér. Mætingin var ekki upp á sitt besta en við sem mættum skemmtum okkur frábærlega saman. Mætingin reyndar kallar á það að við þurfum að skella á auka skemmtun í ágúst sem verður klárlega ekki af verri endanum miðað við fyrri skemmtanir okkar saman. Hrikalega verður gaman. Ég og Árni frændi vorum samferða heim á sunnudeginum og skipulögðum aðeins. Aðallega skipulögðum við að skipuleggja næsta viðburð betur en bekkjamótið :o) Vorum að spá í að hafa blöðrur og allt....jafnvel hatta. úhú!
Hafsteinn Einar setti persónulegt met í morgun í að vakna og mæta á réttum tíma, held að þetta met verði seint slegið hjá honum aftur. Held hann hljóti hafa mætt allt of snemma en slíkur var spenningurinn að mæta sinn fyrsta dag í vinnu. Ég heyrði svo í honum í hádeginu þá var hann kominn heim, kófsveittur og ánægður með sig. D:fi-ið (fyrir ykkur lubbana þá er það heitasta heitt í hárvörum) hafði reynst draga að sér fleira en stelpur því hárið var allt morandi í flugum :) Ég fékk nett sjokk þegar hann kom heim með valblað fyrir næsta ár og á því stóð 9. bekkur!!! Já litli kúturinn minn er að verða eldgamall, ég ólíkt mörgum foreldrum get státað af því að vera bara alltaf jafn ung og sæt en það eru m.a. kostir þess að eignast börnin sín á óæskilegum aldri :o)