Skagamenn, Skagamenn skoruðu mörkin.....
Ísak var á Shellmóti í Eyjum, Þórhallur fór með hann. Drengurinn spilaði með tveimur liðum C og B. C liðið lenti í 4 sæti og B liðið í öðru sæti. Hann lét svo sannarlega ljós sitt skína og skoraði hvorki meira né minna en 15 mörk. Hann fékk líka að reyna sig í marki og fékk aðeins eitt mark á sig. Hörku leikmaður hann Ísak. Þeir feðgar voru svo aðeins lengur í Eyjum en liðið og fóru með seinni ferð heim. Þeir notuðu tímann til að fara í fljallgöngu og spranga og þess háttar.
Þeir fóru í fjallgöngu feðgarnir og skemmtu sér hið besta. Fóru erfiðu leiðina upp og auðveldari niður. Góð æfing fyrir gönguna sem Ísak fer í með ömmu og afa í Borgarnesi. Stefnum á að fara á Esjuna í vikunni.
Hafsteinn Einar var líka að keppa í dag, leikurinn í dag fór heldur verr en sá í síðustu viku svo illa að við ræðum það ekki nánar hér :o) Þeir voru þó glaðir á heimleiðinni en ljóst að ýmsu var ábátavant utan þess hversu blikarnir stóðu sig vel. Fólki fannst það merki um mikinn pirring í liðinu þegar Hafsteinn var farinn að bölva inni á vellinum. Þeir eru þó enn í 5 sæti á Íslandsmótinu en markahlutfallið heldur betur beðið hnekki eftir átök dagsins. Það verður heldur betur tekið á því í næstu viku :o) Skrudda litla fékk að koma með til RVK en fór í heimsókn til Freyju frænku sinnar, Ásdísar og Ben. Hún var mjög ánægð með þá ákvörðun og vildi helst gista. Hún kom síðan heim með tvo fulla poka af fötum sem hún hefur mátað mikið í kvöld :o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli