laugardagur, 26. júlí 2008
mánudagur, 14. júlí 2008
föstudagur, 4. júlí 2008
Afmælis...
Hafsteinn Einar okkar á afmæli í dag :o) orðinn 14 ára gamall. Mér finnst ótrúlega stutt síðan unglingurinn minn var bara pínu lítill og eiginlega eins og hann hafi fæðst í gær. Hann fæddist í blíðskaparveðri, ekki ósvipuðu og var hér í dag. Við vorum búin að bíða eftir honum heillengi, enda á reiki með nákvæma dagsetningu. Hann fæddist svo stór og myndarlegur og greinilega genginn framyfir. Sléttur og fallegur og með langar neglur. Nú er kúturinn okkar vaxin foreldrum sínum yfir höfuð og er eins og þegar hann fæddist, stór og myndarlegur :o)
Á afmælisdögum rifjast upp fyrir manni fæðingardagur afmælisbarnsins og bernska. Það er ekki frá því að maður verði örlítið meir, öllu fremur stoltur af því afreki að ala barn upp og fá að vera hluti af tilveru þeirra. Hafsteinn Einar hefur alltaf verið fremur varkár og traustur, hann er með eindæmum fyndinn og fljótur að svara fyrir sig, stundum ókostur :o).
Þegar hann var 5 - 6 ára og var farinn að vera úti með vinum sínum mátti gjarnan sjá hann standa við ósýnilegu línuna (línan sem hann mátti ekki fara yfir þ.e. ekki fara lengra frá húsinu) og veifa vinum sínum sem þá höfðu kannski ekki slíkar reglur eða hunsuðu þær.
Eins rifjast upp fyrir manni gullkorn sem komið hafa frá þessum elskum, vangaveltur um lífið og tilveruna. Hafsteinn ákvað það t.d. fljótlega að best væri að konan hans yrði örvhent eins og hann því það myndi spara þeim mikið í útgjöldum, þau þyrftu þá t.d. ekki að kaupa tvenn skæri eða dósaopnara.
Fyrsta skóladaginn grét Hafsteinn Einar og var viss um að honum yrði strítt í skólanum. Ástæðan var að hann var viss um að allir myndu segja að hann væri horaður (hann var fjarri því að vera horaður barnið þannig að við urðum frekar hissa á þessum áhyggjum) ástæðan var reyndar sú að hann var alltaf með hor :o)
Nú er kúturinn (þetta má ég alls ekki kalla hann og síst á almannafæri, erfitt stundum en ég reyni að takmarka það við rétta hópinn) okkar úti með vinum sínum að skoða lífið í bænum, Írskir dagar og hrikalegt stuð í bænum.
Er ekki komið nóg af væmni :o) Myndir af afmælisbarninu koma um leið og mamman hefur nennt að hlaða þeim inn.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
