sunnudagur, 31. ágúst 2008


Í sumarbústað í júlí, tók trilljónmynir, erfitt að ná góðri mynd af þremur börnum :o)

Allt farið að ganga sinn vanagang. Allir byrjaðir í skóla og vinnu, vakna kl. sjö og svoleiðis. Helst í fréttum er e.t.v. að Þórhallur er sestur á skólabekk aftur og er nú að læra byggingariðntæknifræði (ef ég man það rétt). Ég upplifi mig svolítið eins og einstæða móður svona um helgar, jæja önnur helgin liðin :o) en ég vorkenni mér alveg svakalega :o) Fórum mæðgurnar til Ásdísar og Ben í dag og sátum úti í garði og drukkum kaffi. Ætli ég verði ekki hjá þeim um helgar næstu þrjú árin.

Borgaði ferðina til Ameríku í vikunni, við förum 18. október. Ég er farin að hlakka mikið til þó ég sé kannski ekki svo hrifinn af að vera að fara þangað. Einhverntíma hafði ég heitið því að ég skyldi aldrei fara til Bandaríkjanna svo þegar ég uppgötvaði það að skólinn ætlaði þangað varð ég að sjálfsögðu að breyta viðhorfinu. Ég ákvað þá að ég skyldi ekki fara meðan núverandi forseti væri við völd en það gekk að sjálfsögðu ekki heldur eftir. Ég get þó huggað mig við það að kjörslagurinn verður eflaust hafinn þannig að greyjið verður eflaust farið að hugsa sér til hreyfings þegar ég mæti á svæðið :o) Svona er maður nú samkvæmur sjálfum sér.

Annars annasamar vikur framundan. Held við séum bókuð fram til 20. september. Svo er ég að fara að byrja í blaki á morgun, það verður eflaust eitthvað skrautlegt :o) góð tilbreyting samt frá sófanum.

Börnin eru hress og kát. Passa að sjálfsögðu upp á að maður hafi nóg að gera. Ísak minn er yfir sig ánægður í 5. bekk, hann var nefnilega ekkert á leiðinni í skóla aftur, ætlaði bara að fara að vinna (á skóflu í skurði því það krefst ekki mikillra menntunnar). Hafsteinn er unglingur og á þar af leiðandi misjafna daga/klukkutíma. Hann var rosalega duglegur í ágúst og fór að vinna á Búðum sem uppvaskari...stóð sig mjög vel, dugnaðarforkur auðvitað og er afskaplega ánægður með sig. Auður er alltaf söm við sig, alltaf sama skottið. Gaf Hafsteini nærbuxur af sér um daginn, þær voru nefnilega of stórar á hana :o) Hún er að fara að æfa fimleika skvísan. Hún varð yfir sig hrifin af ÓL. og gerði æfingar með stelpunum í sjónvarpinu. Svipað eins og þegar strákarnir voru litlir og horfðu á kraftakeppni, voru þá yfirleitt komnir á hlýrabolina og farnir að lyfta hinu og þessu :o)

Mér hefur gengið ansi illa að koma inn myndum hérna undanfarið þó ég hefði helst kosið það, tölvan bara frýs.

fimmtudagur, 7. ágúst 2008


Fallegust!

Lottu skott í veiðiferð á Snæfellsnesi. Undi sér vel á bakkanum.