Auður er veik í dag, búin að vera slæm í maganum um helgina. Vona að hún sé að verða betri. Ísak er kominn heim, hann var ósköp ánægður með ferðina. Hann fékk að fara í skólann á Barðaströnd og fékk gamla kennarann minn hann Torfa. Hann var víst mjög skemmtilegur í öllu nema stærðfræði, fyndið því ég hugsaði það sama :o)
Auður fer alltaf undir borð þegar hún er að gera eitthvað sem hún heldur að hún megi ekki gera (verst er að hún heldur að hún megi ekkert gera og er þess vegna oft undir borði) áðan var hún komin undir borð og ég spurði hana hvað hún væri að gera ,,þér kemur það ekki við" heyrðist þá undan borðinu :o)
Læt hér fylgja myndir eftir listakonuna Auði
Örninn sem Ísak sá og tók lambið

Pizza ;o)


1 ummæli:
Rosalega eru þettqa flotta myndir eftir hana Auði mína. Hún er upprennandi listamaður greinilega. Hún á ekki langt að sækja það - mamma hennar verður einn daginn þekkt fyrir sínar myndir eða aðra list.
Láttu þér batna í mallakútnum elsku Auður mín og farður bara undir borð til að vera í friði - mér fannst það ágætt hér á árum áður en er að mestu hætt að komast þangað.
Þín amma í Borgarnesi
Skrifa ummæli